Létt á lóðagjöldum á Akranesi

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar ákvað nú í vikunni að gera ýmsar breytingar á innheimtu gjalda fyrir lóðir sem úthlutað er, bæði fyrir íbúðabyggingar og atvinnuhúsnæði. Sérstaklega verður lengt í frestum á byggingarréttar- og gatnagerðargjöldum íbúðalóða í þriðja hluta Skógahverfis, ofarlega í bænum.

„Tilgangurinn er að auðvelda fólki að tryggja sér lóð í Skógahverfi 3c á hagstæðum kjörum. Skógahverfi er á frábærum stað í mikilli nálægð við náttúruna,“ segir Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri.

Hvað varðar íbúðalóðirnar verður heimilt að dreifa greiðslunum þannig að 25% greiðist innan mánaðar frá úthlutun og annar fjórðungur við veitingu byggingarleyfis, þó að hámarki einu ári frá úthlutun lóðar. Það sem út af stendur, það er helmingurinn, skal greiðast eftir tvö ár frá úthlutun lóðar.

Tónninn um hagstæð lóðagjöld á Akranesi var gefinn þegar bæjarráð samþykkti að bjóða frest á greiðslu gatnagerðargjalda vegna úthlutunar atvinnulóða í Flóahverfi. Heimilt verður nú að greiða gatnagerðargjöld ári eftir úthlutun lóðar. Heimildin tekur til lóða sem úthlutað er frá líðandi stundu og út næsta ár. Til viðbótar við þetta hefur verið tekin ákvörðun um að lækka fasteignaprósentu á atvinnuhúsnæði úr 1,6146% í 1,54% frá og með áramótum.

Flóahverfi er rétt ofan við þéttbýlið á Akranesi og liggur vel við samgönguæðum. Þar eru lausar lóðir sem henta vel fyrir ýmiss konar iðnaðarstarfsemi og eru þær 680 upp í 21.000 fermetrar að flatarmáli. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab