Manstu þegar Jóhanna sigraði Biggest Looser?
Smartland varð 15 ára 5. maí. Af því tilefni hefur ritstjórn Smartlands tekið sig saman og tínt til gullmola síðustu 15 ára. Á þessum tímamótum er fjör að rifja upp allt þetta skemmtilega, fyndna og dusta rykið af öllu því sem við vorum öll löngu búin að gleyma.
Jóhann Elísa Engelhartsdóttir sigraði í keppninni The Biggest Loser Ísland sem fram fór á SkjáEinum. Keppendur dvöldu á Ásbrú meðan á lífsstílsbreytingunni stóð. Hún var 126,2 kíló þegar þátturinn hófst en komst niður í 73,7 kíló.
Jóhanna fór síðar í að hjálpa öðrum í að léttast. Ári eftir keppnina opnaði sig hún um keppnina, sagði hún að hún hafi ekki fundið fyrir öðru en velvild frá þjálfurum og öðrum sem komu að keppninni. „Auðvitað má lengi deila um hvort það sé rétt að hvetja til svona gríðarlegs þyngdartaps á svona skömmum tíma og hvort það sé vænlegt til frambúðar,“ skrifaði Jóhanna árið 2015 en var sátt við hvernig henni gekk.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
