Stórbruni í Danmörku
Stórbruni er í verslun SuperBrugsen í Nordby á eyjunni Fanø úti fyrir Vestur-Jótlandi í Danmörku og er búist við að húsnæðið brenni til kaldra kola þar sem slökkvilið er háð ferjunni milli Esbjerg og eyjarinnar til að komast á staðinn og hefur ekki þann mannskap og búnað á svæðinu sem æskilegt væri miðað við umfang brunans. Skjáskot/Google Maps
Dökkur reykjarmökkur og eldtungur standa nú upp af stórmarkaði í dönsku keðjunni SuperBrugsen í Nordby á eyjunni Fanø við Vestur-Jótland í Danmörku, úti fyrir hafnarborginni Esbjerg, þar sem húsnæði verslunarinnar stendur í ljósum logum og berst allt tiltækt slökkvilið við eldinn sem þó er af skornum skammti þar sem viðbragðsaðilar þurfa að taka ferjuna frá Esbjerg og hefur eldsvoðinn haft töluverð áhrif á siglingar hennar í kvöld.
Rekstraraðili Fanø-ferjunnar greinir frá því á vefsíðu sinni að siglingar séu óreglulegar þar sem neyðarbílar þurfi að fara með ferjunni.
Hefur lögregla umdæmisins sent frá sér fréttatilkynningu þar sem hún hvetur fólk til að halda sig fjarri eldinum, en reykjarmökkinn af honum leggur í suðaustur.
„Haldið ykkur frá staðnum, forðist reykinn og fylgið fyrirmælum okkar á vettvangi,“ segir í tilkynningunni.
Býst við að verslunin brenni til kaldra kola
„Þetta er svakalegt. Öll Brugsen-verslunin er, að því er ég best sé, alelda,“ segir Mogens Valbjørn við danska ríkisútvarpið DR þar sem hann stendur á annarri hæð húss í um 100 metra fjarlægð frá versluninni og fylgist með brunanum.
Þá hefur sjónvarpsstöðin TV Syd rætt við Torben Tobiasen, stjórnarformann SuperBrugsen í Nordby, sem býst við að öll verslunin brenni til kaldra kola. Segir Tobiasen starfsmann í ávaxta- og grænmetisdeildinni hafa heyrt snarkið í eldinum rétt áður en brunakerfi verslunarinnar fór í gang.
„Í kjölfarið fór kerfið í gang og allir viðskiptavinir og starfsmenn komust út í ró og spekt. Fólk brást nákvæmlega eins við og það átti að gera,“ segir stjórnarformaðurinn við TV Syd.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗