„Gríðarlegt áfall fyrir Arsenal“

David Raya fór meiddur af velli gegn Newcastle í kvöld.

David Raya fór meiddur af velli gegn Newcastle í kvöld. AFP/Andy Buchanan

David Raya markvörður Arsenal þurfti að fara af velli vegna meiðsla í leik Arsenal og Newcastle í 11. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld.

Atvikið átti sér stað á 66. mínútu leiksins féll við inni í teig eftir samstuð við William Osula. Þá hélt hann um olnboga sinn og fór skömmu seinna af velli.

„Þetta verður skoðað núna og ég fer líklega í segulómun á morgun til að sjá hvað þetta er nákvæmlega, því eins og er veit ég það ekki. Þetta var högg.

„Ég veit ekki hvernig þetta gerðist né hver meiðslin eru eins og er, svo við verðum að bíða og sjá á morgun,“ sagði Mikel Arteta við SkySports eftir leik.

David Raya hefur verið í stóru hlutverki hjá Arsenal síðustu ár. AFP/Andy Buchanan

Jaime Redknapp, knattspyrnusérfræðingur á SkySports, nefndi það eftir leik að Raya væri eini leikmaðurinn í liði Arsenal sem mætti ekki meiðast og að þetta væri hrikalegt högg fyrir Arsenal:

„Leikmannahópur Arsenal er með tvo leikmenn í hverri stöðu. Sú staðreynd að markvörðurinn þeirra, David Raya, gekk af vellinum virtist vera sárkvalinn.

„Þetta er eini leikmaðurinn í liðinu sem ekki er hægt að fylla skarðið fyrir. Kepa stenst honum ekki snúning. Ég held reyndar að hann eigi í erfiðleikum í ensku úrvalsdeildinni.“

„Þetta er gríðarlegt áfall, eftir því hversu lengi David Raya verður frá, því hann er, eins og ég segi, óbætanlegur, líklega besti markvörðurinn í ensku úrvalsdeildinni, ef ekki einn sá besti í heimi.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab