Handsömuðu eiturlyfjabarón á lista FBI

Fausto Isidro Meza var á lista FBI.

Fausto Isidro Meza var á lista FBI. AFP

Mexíkóski herinn tilkynnti í dag að hann hefði handsamað eiturlyfjabarón sem var á 10 manna lista bandarísku alríkislögreglunnar FBI yfir eftirlýsta glæpamenn.

Maðurinn heitir Fausto Isidro Meza og er kallaður Chapo Isidro. Hann var handsamaður í aðgerð hersins í bænum Guasave í Sinalóa í norðvesturhluta Mexíkó ásamt meintum næstráðanda sínum og fjármálastjóra glæpasamtaka hans.

Fjórir hermenn féllu í aðgerðinni og sjö meintir byssumenn féllu einnig. Átta manns voru handteknir í heildina. 

Ekkert mannfall meðal almennra borgara

Herinn lagði hald á .50-kalíbera riffil, sprengjuvörpu, handsprengjur, önnur skotvopn, fíkniefni og reiðufé. Að sögn hersins hafa engar fregnir borist af mannfalli meðal óbreyttra borgara.

Aðgerðin olli skelfingu í nærliggjandi byggðum og vegna skothríðar þurfti að gera hlé á atvinnumannaleik í hafnabolta í Guasave, að sögn staðarmiðla.

Myndskeið sem birt voru á samfélagsmiðlum sýndu fólk hlaupa um leikvanginn á meðan hrópað var „Leggist niður, leggist niður!“ og skothríð heyrðist í grenndinni. Annað myndskeið virtist sýna herþyrlu á sveimi skjóta úr vélbyssu.

Stórfé heitið þeim sem veitt gat upplýsingar

Chapo Isidro stýrir fíkniefnasmyglsamtökum sem tengjast Beltran Leyva-genginu og eru í bandalagi við aðra af tveimur stríðandi fylkingum hins öfluga Sinaloa-kartels, að sögn bandarískra og mexíkóskra yfirvalda. Hann er ákærður fyrir glæpi bæði í Mexíkó og Bandaríkjunum.

FBI hafði sett hann á lista sinn yfir tíu eftirlýstustu flóttamennina og bandaríska utanríkisráðuneytið hafði heitið allt að 5 milljónum Bandaríkjadala verðlaunum fyrir upplýsingar sem leiddu til handtöku hans.

Í tilkynningu FBI  segir að hópur hans beri ábyrgð á innflutningi á miklu magni af heróíni, metamfetamíni, kókaíni, fentanýli og maríjúana til Bandaríkjanna.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab