Hræðilegar fréttir fyrir Evrópumeistarana
Stjörnuleikmaður París SG hlaut alvarleg meiðsli að sögn Luis Enrique í naumum sigri gegn Nice, 3:2, í 11. umferð efstu deildar Frakklands í knattspyrnu.
Doué skoraði annað mark PSG í dag á 32. mínútu en fór af velli stuttu seinna og kom Ferrán Torres í hans stað. Atvikið átti sér stað á 44. mínútu þegar Doué datt í grasið og greip um hægra hné sitt.
Eftir leik sagði Enrique, knattspyrnustjóri liðsins, að Doué hefði hlotið alvarleg meiðsli, þó að ekkert væri staðfest.
Ríkjandi Evrópumeistararnir hafa verið virkilega óheppnir með meiðsli í ár þar sem fyrir aðeins nokkrum vikum sleit stjörnuleikmaðurinn Kvicha Kvaratskhelia krossband.
Doué hefur verið risastór hluti af velgengni París SG síðustu tímabil þar sem hann var til dæmis maður leiksins í sigri liðsins í úrslitum Meistaradeildar Evrópu gegn Inter árið 2025.
PSG hafði byrjað tímabilið mjög illa en er nú komið aftur á sigurbraut og situr í efsta sæti deildarinnar með 26 stig, fimm stigum á undan Lille.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗