Um helmingur karla er kynferðislega kvíðinn þegar þeir stunda kynlíf með þessum konum

Það er ekkert leyndarmál hvað körlum líkar við í kynlífinu. Við vitum til dæmis að þeir eru mjög hrifnir af hinni klassísku trúboðastellingu en eru ekki eins hrifnir af kúrekastelpustellingunni og áður.

En það sem þú veist kannski ekki er að það er ein týpa kvenna sem karlar verða mjög kynferðislega kvíðnir yfir að stunda kynlíf með.

Hér eiga útlit eða líffræði ekki hlut að máli. Það eru eldri konur sem verða til þess að karlar verða stressaðir þegar kemur að kynlífinu.

47% aðspurðra karla sögðust vera mun kynferðislega kvíðnir þegar þeir sofa hjá konu sem er eldri en þegar þeir sofa með konu á þeirra aldri. Þetta á sérstaklega við þegar aldursmunurinn er 10 ár eða meira.

Það kemur kannski ekki á óvart að þeim mun yngri sem karlarnir voru, þeim mun líklegra var að þeir yrðu kvíðnir þegar þeir stunduðu kynlíf með eldri konum. Karlar á aldrinum 18 til 29 ára voru líklegastir til að verða kvíðnir eða 63% þeirra. Í aldursflokknum 30 til 45 ára var hlutfallið 51%.

Kvíðinn er ekki eitthvað sem karlarnir eru ákafir í að segja frá því 77% þeirra hafa aldrei nefnt þetta við nokkra manneskju.

Metro hefur eftir Marie Morice, kynlífsfræðingi og stofnanda The Pleasure Atelier, að þegar konur eldast sé þeim oft látið líða eins og þær séu ósýnilegar þegar kemur að kynlífi, sérstaklega eftir tíðahvörf. „Á hinn bóginn, eldri kona, sem sýnir kynhneigð sína á virkan hátt, getur verið álitin vera villidýr, kynferðislega gráðug, drottnandi eða ógnandi“, sagði hún.

„Sumar konur öðlast meira sjálfstraust með aldrinum þegar kemur að því að segja frá löngunum sínum og þörfum. Aðrar eru kannski að finna kynhvöt sína á nýjan leik eftir að hafa látið maka sína ganga fyrir árum saman eða börnin eða vinnuna. Sumar eru að uppgötva eigin nautn í fyrsta sinn á lífsleiðinni,“ sagði hún einnig.

Hún benti á að ekkert sé gert í því dægurmenningunni að takast á við kvíða karla, sérstaklega ekki þegar gagnkynhneigða handritið gangi venjulega út á að karlar séu með yngri konur, sem eru mun reynsluminni en þeir.

„Þegar þessum hlutverkum er snúið við, þá er sambandið oft stimplað sem óvenjulegt, ögrandi eða fyndið. Meira að segja orðið „púma“ ýjar að því að eldri kona líti á ungan mann sem bráð sína og ýtir undir hugmyndina um að hún sé drottnandi í kynlífinu og hugsanlega ógnandi,“ sagði hún einnig.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab