Hvað gerðist í hryllingshúsi klámkóngsins? – Hvar eru líkin?
Sagan um klámmyndaleikstjórann og „kynferðislega rándýrið“ (eins og hann lýsti sjálfum sér) Raymond Horsch frá Philadelphia í Bandaríkjunum er ein sú undarlegasta á síðari tímum í Bandaríkjunum. Lögreglan vinnur út frá þeirri kenningu að hann hafi verið raðmorðingi, hann er látinn, og að hann beri ábyrgð á hvarfi minnst sjö kvenna.
Lögreglan telur að hann hafi tekið mörg morðanna upp og að lögreglan sé með myndband í sínum fórum sem sýni meint morð framin. En eftir margra mánaða leit í húsi Raymond og uppgröft í garðinum hans hefur ekki eitt einasta lík fundist og lögreglan getur ekki sannað að myndbandsupptökurnar séu ósviknar.
Nýlega tók málið enn eina undarlega beygju þegar það kom fram að Horsch var uppljóstrari fyrir alríkislögregluna FBI. Er hann meðal annars sagður hafa veitt FBI upplýsingar um sölu á börnum í vændi í Kensington-hverfinu.
Stofnaði sjálfum sér í mikla hættu
Í nýbirtu skjali, sem dómstóll í Philadelphia gerði opinbert, kemur fram að Horsch gerði samning við FBI fyrir rúmlega 12 árum þegar hann sat í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á fíkniefnamáli.
Hann átti allt að ævilangt fangelsi yfir höfði sér en lögfræðingar hans náðu að semja við FBI um samstarf gegn því að hann slyppi við ákæru. Í kjölfarið aðstoðaði hann FBI í tengslum við fíkniefnamál og barnaníð.
Í málsgögnunum segja lögmenn að Horsch hafi stofnað sjálfum sér í mikla hættu í tengslum við samstarfið við FBI.
The Philadelphia Inquirer segir að upplýsingarnar sem Horsch veitti um sölu á börnum í vændi og fíkniefnaviðskipti hafi verið taldar „trúverðugar og traustar“.
Skjölin sýna einnig að þegar samið var við hann vissu saksóknarar alríkisins vel að hann hafði sjálfur verið kærður 2009 fyrir að reyna að lokka níu ára stúlku upp í bíl til sín.
Bönd um hálsin
Þrátt fyrir að nýjar upplýsingar hafi ekki breytt afstöðu lögreglunnar til málsins, að hann sé raðmorðingi og hafi staðið að hvarfi minnst sjö kvenna, gefa þær sögunni dularfullan vinkil.
Líf Horsch var litað af fíkniefna- og vændisumhverfinu í Philadelphia. Lögreglunni hefur ekki tekist að finna út úr hvar mörkin hans á milli raunveruleika og ímyndunaraflsins voru.
Eins og áður sagði var Horsch klámmyndaleikstjóri. Hann bjó í Olney. Í tengslum við „vinnu“ sína borgaði hann konum, sem áttu undir högg að sækja í lífinu, fyrir að sviðsetja eigið andlát og sprauta sig með heróíni sem var blandað með þvagi.
Óþekktur maður sem kvikmyndaði fyrir Raymond.
Við húsleit heima hjá Horsch fann lögreglan undarlegt klám. Myndband af nakinni konu sem bönd eru sett um hálsinn á þar til hún virðist missa meðvitund og virðist „lífvana“.
Lögreglunni tókst að bera kennsl á konuna og það sama á við um konur í öðrum myndböndum, sem eru eins og þetta, en þær eiga það sameiginlegt að hafa ekki sést árum saman.
Dauðaklám
Það er því kannski engin furða að lögreglan dragi þá ályktun að Horsch hafi myrt konurnar.
Vandinn er að Horsch gerði „snuff“-klám sem var ekki raunverulegt, sem sagt leikið.
„Snuff“-klám er einhverskonar klám, sem er að finna í dekkstu afkimum Internetsins. Það er einnig kallað „dauðaklám“. Í slíkum myndum eru einn eða fleiri af þátttakendunum drepnir og það tekið upp.
Lögreglan telur að Raymon hafi gert svokallaðar snuff-myndir.
Það er þó rétt að taka fram að megnið af „snuff“-klámi er ekki ekta. Það er leikið og leikstýrt og notast við margvíslegar tæknibrellur til að láta það líta út fyrir að vera raunverulegt.
En það eru til ekta „snuff“-klámmyndir.
Rannsóknin heldur áfram
Við leit heima hjá Horsch fann lögreglan meðal annars leikhúsblóð og hún hefur borið kennsl á sumar kvennanna, sem lögreglan hélt að hefðu verið drepnar í myndum Horsch, en fundust síðar á lífi.
Það er því eitt og annað í málinu sem bendir til að myndunum hafi verið leikstýrt og leiknar.
En lögreglan er ekki reiðubúin til að falla frá grun sínum um að Horsch hafi myrt konur og að sumar af myndum hans sýni raunveruleg morð.
Raymond Horsch á efri árum.
Við leitina heima hjá honum fannst meðal annars handskrifaður miði þar sem raðmorðinginn Ted Bundy er nefndur og ýmsar leiðir til að „losa sig við rusl“.
Í kjallaranum fann lögreglan það sem hún segir vera „einhverskonar heimagerða tilraunastofu“ og gríðarlegt magn myndbanda og ljósmynda. Enn er verið að fara yfir myndefnið.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗