Tónlistin og ljósið flæða í gegn
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópransöngkona fagnar 10 ára afmæli jólatónleikanna Sígild jól í Seltjarnarneskirkju 4. desember. Við erum að tala um kyrrláta kvöldstund þar sem sígildar jólaperlur, íslensk jólalög og sönglög úr klassískum ranni hljóma saman.
„Af þessu tilefni verður frumflutt nýtt jólalag eftir Báru Grímsdóttur tónskáld sem samið er sérstak lega fyrir Sígild jól. Við Bára kynntumst á tónlistarhátíðinni Berjadögum á Ólafsfirði og þar sem hún hefur samið mjög falleg og sjarmerandi lög datt mér í hug að biðja hana að semja fyrir mig jólalag. Hún var til í það og núna er lagið tilbúið; samið fyrir orgel, fiðlu, selló og messósópran,“ segir Sigríður Ósk en lagið heitir Bergmál frá bernskudögum og er samið við ljóð eftir séra Árelíus heitinn Níelsson, sem lengst af þjónaði í Langholtsprestakalli.
Gestir á tónleikunum verða söngvararnir Diddú og Gissur Páll Gissurarson, Árni Heiðar Karlsson sem leikur á orgel og píanó, Matthías Stefánsson fiðluleikari og Júlía Mogensen sellóleikari. Sigríður Ósk ber lof á hópinn. „Þau eru öll frábær og ég hef tengst þeim og unnið með þeim á mismunandi tímum í gegnum minn tónlsitarferil. Þetta er mjög fjölhæfur hópur og sumar útsetningarnar hafa að hluta orðið til á æfingunum.“
Sigríður Ósk leggur áherslu á einlægni, hlýju og tærleika á tónleikunum. „Markmiðið er að leyfa tónlistinni og ljósinu að flæða í gegn. Hlutverk okkar listamannanna er að miðla en ekki troða okkur fram fyrir tónlistina. Við erum að gera þetta fyrir gestina – fólkið sem kemur í kirkjuna.“
Hin trúarlega tenging
– Ertu sjálf mikið jólabarn?
„Já, ætli það ekki. Það er svo mikið til af fallegri jólatónlist, auk þess sem stemningin og hin trúarlega tenging eru stór partur af heildinni.“
– Ertu trúuð?
„Já, ég er það. Ég ólst upp við að fara með bænirnar mínar á kvöldin og var í kristilegum sumarbúðum. Það sáði einhverjum fræjum og trúin er stór partur af lífi mínu í dag. Ég kann að meta hin kristnu gildi og finn frið og gleði í trúnni. Mér finnst mikilvægt að rækta hana, nóg er nú víst til að draga mann niður í þessum heimi. Og hvenær er betra að rækta kærleikann og ljósið en einmitt um jólin? Það geri ég ekki síst gegnum tónlistina; hún er einhver vídd sem fólk tengir við og lyftir því upp. Falleg tónlist er eins og falleg náttúra – næring fyrir andann.“
Nánar er rætt við Sigríði Ósk í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
