Ótrúlegur endir í Philadelphia
Tyler Herro átti tröllaleik í grátlegu tapi Milwaukee Bucks gegn Philadelphia 76ers, 132:129, í NBA-deildinni í Philadelphia í kvöld.
76ers hafa byrjað tímabilið virkilega vel og situr liðið í efsta sæti austurhluta deildarinnar með 13 sigra og þrjú töp.
Bucks eru hins vegar í bullandi veseni eftir að hafa misst stórstjörnu sína Giannis Antentokounmpo og situr liðið í neðsta sætinu með aðeins einn sigur og 15 töp. Var því talið líklegt að 76ers myndi labba yfir Bucks í kvöld.
Það var hins vegar ekki raunin og þegar 1,5 sekúndur voru eftir var Bucks aðeins þremur stigum undir. Tyler Herro var allt í öllu hjá gestunum í dag þar sem hann hafði skorað 50 stig, tekið 11 fráköst og gefið sjö stoðsendingar og ætlaði hann ekki að leyfa sínum mönnum að tapa.
Hann tók síðasta skot leiksins, hitti úr þriggja stiga skoti til að jafna metin en var sekúndubroti of lengi að sleppa boltanum og taldi karfan því ekki og naumur sigur heimamanna varð niðurstaðan.
Tyler Herro's game-tying triple wasn't released in time. Another win in the clutch for the Sixers. https://t.co/kar3QrCT0H
— Underdog NBA (@UnderdogNBA) November 21, 2026
Stigahæstur í liði 76ers var Joel Embiid en hann skoraði 26 stig ásamt því að taka 17 fráköst og gefa níu stoðsendingar.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗