Dularfullar ferðir morðingjans vekja óhug – Óttast að fórnarlömbin séu fleiri
Ættingjar og fyrrverandi samferðafólk Dwain Hall, sem hefur verið sakfelldur fyrir hrottalegt morð á breskri konu í Flórída, óttast að hann kunni að hafa fleiri mannslíf á samviskunni. Þeir lýsa dularfullum ferðum hans um árabil og hegðun sem þeir telja nú að geti haft dekkri skýringar en áður var talið.
Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun Daily Mail, sem hefur rætt við fólk úr fortíð Hall og heimsótt staðinn þar sem fórnarlamb hans, hin 32 ára Sonia Exelby, var myrt.
Sonia var tónlistarkennari frá Portsmouth á Englandi. Hún fannst látin í grunnri gröf í Flórída í október í fyrra. Hún hafði verið pyntuð og stungin fjórum sinnum.
Hall, 54 ára bifvélavirki, var í gær fundinn sekur um morð og mannrán og dæmdur í lífstíðarfangelsi.
Óttaðist um líf sitt
Sonia hafði kynnst Hall á netinu um tveimur árum áður en hún lést. Hún glímdi við alvarlega andlega vanlíðan og hafði rætt við hann um að hann myndi hjálpa henni að binda enda á líf sitt.
Sjá einnig: Ferðaðist til Bandaríkjanna í leit að ofbeldisfullum dauðdaga – Fannst í grunnri gröf í Flórída
Samkvæmt gögnum sem lögð voru fram fyrir dómi hafði Hall smám saman náð sterkum tökum á henni.
Sonia virðist þó hafa séð eftir ákvörðun sinni nánast um leið og hún lagði af stað til Bandaríkjanna.
„Ég vildi óska þess að ég væri heima, en ég kemst ekki úr flugvélinni,“ skrifaði hún í síma sinn.
Síðar, þegar hún var komin í hendur Hall, sendi hún vini sínum skilaboð þar sem hún lýsti miklum ótta.
„Ég gerði hræðileg mistök. Ég held að það sé orðið of seint. Ég er svo hrædd,“ skrifaði hún skömmu áður en hún var myrt.
Hvarf dögum saman
Í ítarlegri umfjöllun Daily Mail í dag kemur fram að Hall hafi árum saman farið í dularfull ferðalög sem vöktu furðu fólks í kringum hann.
Jefferson Evans, sem þekkti Hall vel, segir hann hafa horfið dögum saman, að jafnaði einu sinni á ári í ellefu ár. Hall hafi jafnan sagst vera að sinna verkefnum fyrir auðugan mann sem ætti verðmætt bílasafn.
Að sögn Evans notaði Hall sömu skýringu þegar hann hitti Soniu.
„Ég tel örugglega að Sonia hafi ekki verið sú eina,“ segir Evans.
Frændi Hall, Kyle Robb, lýsir jafnframt ferðum sem Hall fór reglulega í með kunningja sínum, Rick Snider. Þeir hafi kallað ferðirnar sérstök verkefni en lítið sagt um tilgang þeirra.
Robb segist nú velta því fyrir sér hvort fleiri konur kunni að hafa orðið fyrir barðinu á frænda hans.
Sendi kunningja blóðugan hníf
Eitt óhugnanlegasta atriðið í umfjölluninni tengist hníf sem Hall sendi Snider í pósti eftir morðið á Soniu.
Samkvæmt Daily Mail var enn blóð úr Soniu á hnífnum þegar lögregla fann hann.
Snider hefur neitað að hafa vitað að hnífurinn tengdist morðinu. Hann segir dularfullar ferðir þeirra Hall ekki hafa snúist um neitt alvarlegra en fíkniefnaneyslu og minniháttar brot.
Þótt frásagnirnar hafi vakið grunsemdir hefur ekkert komið fram sem staðfestir að Hall hafi myrt fleiri en Soniu. Ekki liggur heldur fyrir að lögregla hafi tengt hann við önnur mannshvörf eða morð.
Fjölskylda Soniu hefur lagt áherslu á að hennar verði minnst fyrir lífið sem hún lifði fremur en þær hörmungar sem urðu henni að bana.
„Hún var innilega elskuð og verður það alltaf,“ sagði fjölskyldan í yfirlýsingu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗