Síberískur sjaman ætlar að fórna 60 kameldýrum til að hjálpa Pútín að vinna stríðið
Pressan
Laugardaginn 21. nóvember 2026 20:30
Artur Tsybikov telur sig geta hjálpað Pútín að vinna stríðið.
Síberíski sjamaninn Artur Tsybikov hefur í hyggju að fórna 60 kameldýrum til að hjálpa Vladímír Pútín að vinna stríðið í Úkraínu. Hann vill fórna fimm dýrum í mánuði til að tryggja Pútín stuðning slavískra guða við hið blóðuga innrásarstríð Rússa.
Sjamaninn heldur því fram að þetta muni færa Pútín sigurinn sem her hans hefur ekki náð að knýja fram á þeim tæpu fimm árum sem eru liðin frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu.
Metro skýrir frá þessu og segir að sjamaninn vonist til að geta byrjað fórnirnar síðar í nóvember í bænum Angarsk, sem er nærri Irkutsk.
„Allir fornu guðirnir munu koma. Við munum gefa þeim að borða, sitja með þeim, tala við þá og biðja þá um fyrirgefningu,“ sagði hann.
Hann sagði að dýrunum verði fórnar fyrir hönd allra í Rússlandi.
Rússneskir dýraverndunarsinnar hafa gagnrýnt hann fyrir grimmd og aðrir sjamanar segja að þessi slátrun á kameldýrum sé afmyndun á fornri trú þeirra. Kameldýr eru talin heilög í sumum héruðum Síberíu.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗