„Þetta reddast“ á 14. öld

Lea rýnir í handrit frá um það bil árinu 845 í St. Gallen í Sviss, Codex Sangallensis 904 sem er írskt miðaldahandrit varðveitt í bókasafni klaustursins þar. Í handritinu er að finna latnesku málfræðiritin Institutiones grammaticae eftir Prisíanus frá Saesarea, sem var uppi á 6. öld, ásamt yfir 9.000 skýringarglósum, þar af 3.478 á geilísku, frumtungu Íra. Ljósmynd/Aðsend

„Jæja, væri ekki gott að hafa komið til Íslands áður en maður fer að skoða þetta?“ segist dr. Lea Debora Pokorny, austurrískur nýdoktor í sagnfræði við Háskóla Íslands, hafa spurt sjálfa sig þegar hún ákvað á sínum tíma, fyrir um áratug, að skrifa meistaraprófsritgerð um Íslendingasögur.

Vissulega komst hún að þeirri niðurstöðu að svarið hlyti að vera já og þótt hún sé nú búsett í Svíþjóð hefur hún átt sér langa búsetu á Íslandi, starfað sem aðstoðarmaður við rannsóknir á Stofnun Árna Magnússonar og – það sem er hryggjarstykki þessa viðtals – nýlega varið doktorsritgerð sína í sagnfræði hér á landi um forvitnilegt efni.

Það gerði hún 27. október og fjallaði ritgerð hennar um handritagerð og -vinnslu á síðari hluta 14. aldar hér á landi undir titlinum Book Production in Late-Fourteenth-Century Iceland. A Codicological Study in the European Context. Lea lagði ritgerðina eingöngu fram á ensku, en íslenskur titill hennar væri Bókagerð á Íslandi á síðari hluta fjórtándu aldar. Handritafræðileg rannsókn í evrópsku samhengi.

Ætlaði að verða þýðandi, en …

Þessi saga hefst þó við annan skóla, Háskólann í Vínarborg, þar sem Lea hóf nám í skandinavískum fræðum árið 2013, en valdi að læra sænsku sem tungumál og fóru leikar svo að hún skrifaði tvær BA-ritgerðir við skólann.

„Önnur þeirra var á sviði forníslensku og ég skrifaði um fornaldarsögu og fannst það skemmtilegt,“ segir hún frá. „Ég ætlaði upphaflega að verða þýðandi af þýsku yfir á sænsku og öfugt, en skipti þarna um skoðun,“ heldur hún áfram. Þar með fæddist hugmyndin um að skrifa um Íslendingasögur til meistaraprófs og því fylgdi sú spurning sem við hófum þetta viðtal á.

„Ég sótti um Erasmus-styrk og kom til Íslands í ágúst 2017 í fyrsta sinn á ævinni. Ég kunni varla neina íslensku og talaði hana lítið svo ég tók nokkur námskeið á námsbrautinni íslenskum miðaldafræðum og fannst það bara geggjað, þarna komu sagnfræði, bókmenntafræði og málfræði saman,“ segir Lea, en rétt er að geta þess hér að meistaranámið við HÍ í miðaldafræðum er kennt á ensku og hefur laðað erlenda nemendur og forvitnilega fræðimenn utan úr heimi til sín eins og flugur að ljósi.

Haraldur Bernharðsson prófessor hefur sagt Morgunblaðinu og mbl.is af miðaldafræðanáminu sem hefur verið vel sótt síðan því var ýtt úr vör.

Doktorsvörnin 27. október. F.v.: Erik Kwakkel, Viðar Pálsson, Kathryn Lowe, Lea sjálf, Nicole Volmering, Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir og Beeke Stegmann við doktorsvörnina 27. október sem gekk eins og í sögu að sögn nýdoktorsins. Ljósmynd/Gunnar Sverrisson

Lea var sem sagt yfir sig hamingjusöm og leikar fóru svo að hún skrifaði meistaraprófsritgerð sína um Króka-Refs rímur Hallgríms Péturssonar og lagði hana fram vorið 2019. Rímurnar voru ekki gefnar út fyrr en nær 300 árum eftir að Hallgrímur lauk kveðskapnum og það gerði Finnur Sigmundsson landsbókavörður.

Fjallaði Lea í ritgerð sinni um ritstjórnarlegar ákvarðanir Finns um afbrigði sem lesa má út úr mismunandi vísum rímnanna og lýsti auk þess elstu handritum þeirra með tilliti til efnislegra einkenna í samræmi við aðferðir og kenningar efnislegrar textafræði. Eins gerði Lea tillögu um nýja leið við útgáfu rímnanna.

Var reyndar í smá krísu

Í þessari meistaraprófsritgerð má segja að tónninn hafi að nokkru leyti verið sleginn fyrir doktorsritgerðina um 14. aldar handritin þar sem Lea skoðar efnisleg einkenni, framleiðsluaðferðir og aðferðir við breytingar og leiðréttingar, í raun aðferðafræði prófarkalesara 14. aldar. Sú stétt er eldri en margan grunar.

„Ég var reyndar í smá krísu með hvað ég ætlaði að gera að loknu meistaraprófinu,“ segir Lea sem talaði litla sem enga íslensku haustið 2017, en talar málið nú reiprennandi.

Það var einmitt í þeirri krísu sem hún var ráðin sem aðstoðarmaður til Árnastofnunar í það verkefni að rannsaka handrit tengd Helgafellsklaustri á Snæfellsnesi.

„Hugmyndin var að skoða efnisleg einkenni þessara handrita, hvernig þau voru framleidd, til dæmis Skarðsbók Jónsbókar sem er mjög fínt handrit,“ segir Lea af áhuga fræðimannsins og blaðamann fer að gruna ýmislegt. Í lok október birtist hér í Morgunblaðinu viðtal við dr. Erik Kwakkel, prófessor við upplýsingafræðideild Háskólans í Bresku-Kólumbíu, sem hingað kom og hélt fyrirlestur í Eddu um spássíupár á miðaldahandritum.

Sá mæti maður er mun meiri áhugamaður um bækur en bókmenntir, sagði hann hér í viðtali, hann skoðar sem sagt gerð og hönnun bóka frá því fyrir prentöld. Fyrirlestur hans hjá Miðaldastofu var hins vegar hliðarverkefni, hann var að koma til að sitja vörn doktorsefnis, manneskju sem hann gegndi hlutverki aðstoðarleiðbeinanda hjá.

Varst það þú?

„Já já, það var ég, hann var aðstoðarleiðbeinandinn minn,“ játar Lea fúslega og hlær. Svona er nú fræðaheimurinn stundum lítill, sérstaklega reyndar sá hluti handritafræði sem þau tvö, Austurríkismaðurinn og Hollendingurinn við kanadíska háskólann, fást við, efnisleg gerð og framleiðsluaðferðir miðaldahandrita. Þess má geta að aðalleiðbeinandi Leu við doktorsverkefnið var Beeke Stegmann, rannsóknardósent á menningarsviði Árnastofnunar.

Handritið AM 226 fol., Stjórn, sem er varðveitt í Arnamagnæan Institut í Kaupmannahöfn. Handritið geymir þýðingar úr nokkrum bókum Gamla testamentisins, Rómverja sögu, Alexanders sögu og Gyðinga sögu. Ljósmynd/Aðsend

Engar staðlaðar kennsluaðferðir

„Hugmyndin að doktorsverkefninu mínu spratt af rannsókninni á Helgafellsbókunum. Þetta eru 16 upprunaleg handrit í heildina. En eru þau efnislega tengd? Eru þarna einhverjar aðferðir, eins og til dæmis hvernig textaflöturinn var afmarkaður, sem voru bara notaðar í Helgafellsklaustri? Til þess að svara þessari spurningu þurfum við að hafa einhvern samanburð af því að við vitum ekki hvernig handrit voru framleidd á síðari hluta 14. aldar, frá 1350 til 1400,“ útskýrir nýdoktorinn.

Lea lagði doktorsritgerð sína fram sem fjórar fræðigreinar og tefldi fram einni rannsóknarspurningu fyrir hverja þeirra. „Bókagerðarhefðum miðalda í Evrópu er oft skipt upp í meginlandshefðir og eyjahefðir, á Bretlandseyjum var eyjahefðum til dæmis fylgt. Við rannsóknina skoðaði ég götun og línun handrita og hvaða aðferðum var beitt við að leiðrétta handrit eða texta, hvort sérstakur yfirlesari fór yfir handritið eða hvort skrifarinn sjálfur leiðrétti á meðan hann var að skrifa textann, þetta getur sagt okkur heilmikið um skipulag handritagerðar sem við vitum í raun mjög lítið um,“ segir hún.

Bókagerð á Íslandi á miðöldum segir Lea að miklu leyti hafa byggst á útsjónarsemi, nota varð það bókagerðarefni sem til var, annað var ekki í boði.

„Eins voru engar staðlaðar kennsluaðferðir til og heldur engir staðlar yfir útlit bóka eða línuskipan í þeim. Þú lærðir bara það sem meistarinn þinn kenndi þér og notaðir svo annaðhvort það eða þróaðir þína eigin aðferð,“ segir Lea og bætir því við að íslenskt bókagerðarfólk hafi verið í mörgum hlutverkum, skrifarar, listamenn og prófarkalesarar.

„Skrifarar gerðu margt annað en að skrifa og fólk var misfært í þessum hlutverkum. Þú getur verið frábær skrifari án þess að kunna að teikna eða átt í vandræðum með að telja og svo eru kannski 20 línur af texta á einni síðu en 25 á þeirri næstu. Fólk hafði líka mismunandi menntun og reynslu og af því gat sprottið ósamræmi. Íslendingar segja gjarnan „þetta reddast“ og það var kannski hugsunin líka við handritagerð á miðöldum, æ, við eigum ekki þennan lit í upphafsstafinn, þá verðum við bara að nota annan lit, þetta reddast,“ segir Lea Debora Pokorny, nýdoktor í sagnfræði við Háskóla Íslands, að lokum.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab