Sannkölluð jólastemning á Akureyri

Jólatréð var tendrað.

Jólatréð var tendrað. mbl.is/Þorgeir

Jólatorgið á Akureyri var opnað í dag og við sama tilefni voru ljósin á jólatrénu á Ráðhústorgi tendruð.

Jólatorgið verður opið allar helgar í desember fram að jólum. Með Jólatorginu verður sköpuð hátíðleg aðventustemning á Ráðhústorgi. Þar verður til sölu ýmis varningur sem yfirleitt tengist hátíðarhöldunum og boðið upp á dagskrá fyrir börn og fullorðna þá daga sem Jólatorgið er opið.

Opnunin og tendrun ljósanna var haldin hátíðleg í dag en dagskráin hófst með því að Lúðrasveit Akureyrar lék og spilaði jólalög undir stjórn Sóleyjar Bjarkar Einarsdóttur.

Norðlenski drengurinn Atli Einarsson tendraði ljósin.

Norðlenski drengurinn Atli Einarsson tendraði ljósin. mbl.is/Þorgeir

Því næst stigu jólasveinar á svið og skemmtu með söng og leik en Maddamma úr Skilaboðaskjóðunni, Hans og Gréta, Jóla-Lóla, Krýla og Vettlingur skemmtu einnig. 

Erik Vilstrup Lorenzen, sendiherra Danmerkur á Íslandi, er staddur á Akureyri og flutti ávarp en það gerði Berglind Ósk Guðmundsdóttir einnig en hún tók við sem bæjarstjóri Akureyrar fyrr í ár. 

Það féll svo í skaut Atla Einarsson að tendra ljósin á trénu en að því loknu sungu barnakórar Akureyrarkirkju undir stjórn Guðnýjar Ölmu Haraldsdóttur við undirleik Péturs Nóa Stefánssonar

Jólasveinar stigu á stokk með söng og leik.

Jólasveinar stigu á stokk með söng og leik. mbl.is/Þorgeir

Akureyringar fjölmenntu.

Akureyringar fjölmenntu. mbl.is/Þorgeir

mbl.is/Þorgeir

Erik Vilstrup Lorenzen, sendiherra Danmerkur á Íslandi, og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar. mbl.is/Þorgeir

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab