Sannkölluð jólastemning á Akureyri
Jólatorgið á Akureyri var opnað í dag og við sama tilefni voru ljósin á jólatrénu á Ráðhústorgi tendruð.
Jólatorgið verður opið allar helgar í desember fram að jólum. Með Jólatorginu verður sköpuð hátíðleg aðventustemning á Ráðhústorgi. Þar verður til sölu ýmis varningur sem yfirleitt tengist hátíðarhöldunum og boðið upp á dagskrá fyrir börn og fullorðna þá daga sem Jólatorgið er opið.
Opnunin og tendrun ljósanna var haldin hátíðleg í dag en dagskráin hófst með því að Lúðrasveit Akureyrar lék og spilaði jólalög undir stjórn Sóleyjar Bjarkar Einarsdóttur.
Því næst stigu jólasveinar á svið og skemmtu með söng og leik en Maddamma úr Skilaboðaskjóðunni, Hans og Gréta, Jóla-Lóla, Krýla og Vettlingur skemmtu einnig.
Erik Vilstrup Lorenzen, sendiherra Danmerkur á Íslandi, er staddur á Akureyri og flutti ávarp en það gerði Berglind Ósk Guðmundsdóttir einnig en hún tók við sem bæjarstjóri Akureyrar fyrr í ár.
Það féll svo í skaut Atla Einarsson að tendra ljósin á trénu en að því loknu sungu barnakórar Akureyrarkirkju undir stjórn Guðnýjar Ölmu Haraldsdóttur við undirleik Péturs Nóa Stefánssonar
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗




