Þetta muni færa Andra stóra skrefið í ensku úrvalsdeildina

433

Laugardaginn 21. nóvember 2026 19:30

Andri Lucas Guðjohnsen. Mynd: DV/KSJ

Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir allt það helsta í Íþróttavikunni, sem kemur út alla föstudaga.

Andri Lucas Guðjohnsen hefur verið sterklega orðaður við ensku úrvalsdeildina undanfarnar vikur eftir að hafa slegið í gegn með Blackburn í B-deildinni. 

Ekki skemmdi hann fyrir sjálfum sér með því að skora fjögur mörk í tveimur leikjum í nýafstöðnum landsleikjaglugga, þar af þrennu gegn Búlgaríu.

„Hann bara hlýtur að fara í janúar,“ sagði Helgi áður en Hörður tók til máls.

„Hann þarf að halda sér heilum í desember. Það var skynsamlegt af honum að fara af velli í hálfleik á móti Lúxemborg. Ef hann skorar fimm mörk ofan á það fær hann move,“ sagði hann.

„Hann er aðeins orðaður við önnur lið í Championship en maður vill sjá hann fara í efstu deild. Ekki nema það væri í eitthvað lið sem væri nánast öruggt með að fara upp og verkefnið skemmtilegt,“ sagði Helgi að endingu.

Þátturinn er í spilaranum.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab