Hélt að móðir sín væri andsetin – Skaut hana í höfuðið

Ronald Kirk, 38 ára, var nýlega dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að hafa skotið móður sína, Rosa Leyva 61 árs, í höfuðið þar sem hún sat við borðstofuborðið heima hjá þeim í Gladstone í Oregon í Bandaríkjunum. Hann getur sótt um reynslulausn eftir 25 ár.

Michelle Guzman, yngri systir Leyva, sagði í samtali við KGW8 að síðustu tvö ár hafi verið þau erfiðustu í lífi fjölskyldunnar sem hafi þurft að glíma við að hafa misst systur, dóttur, ömmu, vinkonu, þetta hafi breytt lífi þeirra um alla framtíð.

Lögreglan í Gladstone var kölluð að heimili mæðginanna í lok nóvember 2024 þegar samstarfsfólk Levya fór að óttast um hana þegar hún kom ekki til vinnu.

Kirk kom til dyra þegar lögreglan knúði dyra og sagði að móðir hans væri inni og hefði verið meðvitundarlaus í um sólarhring.

Lögreglumennirnir fundu Levya látna við borðstofuborðið fyrir framan fartölvuna sína, vínglas var við hlið hennar. Líkaminn hennar var hulin með koddaverum.

Hún hafði verið skotin í höfuðið um klukkan 18.45 daginn áður að mati réttarmeinafræðinga.

Fyrir dómi sagði saksóknari að Kirk hefði setið við hlið líksins í um sólarhring.

Leyva bjó með Kirk en í byrjun nóvember hafði hún fengið sig fullsadda af áfengisneyslu hans, eiturlyfjanotkun, skapofsa og undarlegri hegðun sem var knúin áfram af áfengis- og eiturlyfjanotkun.

Þegar Kirk var undir áhrifum áfengis og eiturlyfja varð hann heltekinn af særingum og djöflum. Nokkrum vikum fyrir morðið sagði Levya nánum vini sínum að Kirk teldi hana vera andsetna.

Mánuði áður en Kirk skaut móður sína til bana skildi hann eftir skilaboð í talhólfi sonar síns þar sem hann sagði móður sína vera andsetna og að hann hefði „nánast“ skotið hana í höfuðið daginn áður.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab