Haukar skrefinu nær 16-liða úrslitum

Haukar unnu ótrúlegan sigur á Ásvöllum í dag.

Haukar unnu ótrúlegan sigur á Ásvöllum í dag. Anton Brink

Haukar höfðu betur gegn Rd Slovenj Grandec, 28: 27, í fyrri viðureign liðanna um sæti í 16-liða úrslitum Evrópubikars karla í handbolta á Ásvöllum í dag.

Haukar byrjuðu leikinn vel og var liðið með þriggja marka forystu í hálfleik, 9:6. Þá gáfu gestirnir hins vegar í og voru Haukar allt í einu fjórum mörkum undir í hálfleik.

Haukar náðu hins vegar að koma til baka og tóku aftur forystuna og í síðustu sókn leiksins átti Aron Rafn Eðvarðsson frábæra vörslu sem tryggði sigurinn.

Liðin mætast í seinni viðureigninni á laugardaginn næstkomandi.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab