Lagði upp mark gegn stórliðinu

Ágúst Orri Þorsteinsson lagði upp fyrsta mark Excelsior í dag.

Ágúst Orri Þorsteinsson lagði upp fyrsta mark Excelsior í dag. Ljósmynd/Alex Nicodim

Ágúst Orri Þorsteinsson og félagar í Excelsior unnu óvæntan sigur gegn Feyenoord, 3:2, í 13. umferð efstu deildar Hollands í knattspyrnu í dag.

Excelsior situr nú í 12. sæti deildarinnar með 12 stig á meðan Feyenoord er í þriðja sætinu með 25 stig.

Feyenoord komst yfir eftir aðeins tveggja mínútna leik en stuttu seinna lagði Ágúst upp jöfnunarmarkið. Excelsior náði síðan forystunni á 40. mínútu og kom þriðja markið snemma í seinni hálfleik. 

Feyenoord náði að klóra í bakkann á 67. mínútu og minnkaði muninn en það reyndist ekki nóg og óvæntur sigur Excelsior var niðurstaðan.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab