Bolsonaro lagður inn á gjörgæslu
Jair Bolsonaro, sem var forseti frá 2019 til 2022, hefur ítrekað glímt við fylgikvilla í kviðarholi frá því að hann var stunginn í kosningabaráttunni árið 2018. AFP
Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseti Brasilíu, liggur á gjörgæslu vegna þarmastíflu en Bolsonaro hefur glímt við þrálát heilsufarsvandamál undanfarin ár. Ástand hans er þó sagt stöðugt.
Hinn 71 árs gamli Bolsonaro, sem situr í stofufangelsi, var lagður inn á DF Star-sjúkrahúsið í Brasilíu í gær.
Læknar hafa komið fyrir magaslöngu til að veita honum næringarstuðning, að því er fram kemur í tilkynningu sjúkrahússins.
Kastar upp og er verkjaður
Næstelsti sonur forsetans fyrrverandi, þingmaðurinn Carlos Bolsonaro, segir faðir sinn hafa kastað upp ítrekað og sé mjög verkjaður.
„Ég er ekki læknir, en ég hef aldrei séð hann svona,“ skrifaði hann á X og gaf í skyn að faðir hans gæti þurft að gangast undir aðra aðgerð, mögulega þá tíundu á innan við átta árum.
Alexandre de Moraes, umdeildur dómari við Hæstarétt Brasilíu, heimilaði heimsóknir barna Bolsonaros, þeirra Carlosar, Jair Renan og Lauru, sem og stjúpdóttur hans, Leticiu, á meðan hann dvelur á sjúkrahúsinu, en bannaði farsíma og myndavélar.
Var stunginn fyrir tæpum áratugi
Bolsonaro, sem var forseti frá 2019 til 2022, hefur ítrekað glímt við fylgikvilla í kviðarholi frá því að hann var stunginn í kosningabaráttunni árið 2018.
Hann var dæmdur í 27 ára fangelsi í fyrra fyrir að reyna að halda völdum eftir að hafa tapað kosningunum 2022 fyrir Luiz Inácio Lula da Silva. Eftir nokkurra mánaða fangelsisvist var hann færður í stofufangelsi í mars vegna heilsufarsvandamála.
Flávio, elsti sonur Bolsonaros, bauð sig fram gegn Lula í forsetakosningunum í síðasta mánuði en tókst ekki að sigra forsetann. Flávio flúði til Bandaríkjanna ásamt nánustu fjölskyldu sinni skömmu eftir kosningarnar.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗