Verður að eiga partýföt á þessum árstíma

Hvað geturðu gert ef þú þarft að mæta á viðburð beint eftir vinnu og hefur ekki tíma til að fara heim og skipta um föt? Þá er gott að hafa aukaföt með í poka. Þetta fara þær Marta María Winkel og Edda Gunnlaugsdóttir yfir í nýjasta þætti Dagmála.

„Ef maður er að fara beint eftir vinnu í einhverja snemmbúna jólagleði. Hvernig getur maður orðið svona partílegri en verið samt í vinnufötunum?“ spyr Marta María.

„Ég myndi alltaf byrja á að vera með aðra fínni skó. Þó að þú sért í þægilegum skóm í vinnunni þá geturðu lífgað upp á dragtina með öðrum skóm. Svo finnst mér að maður verði á þessum árstíma að eiga eitthvað partílegt, þú veist, partítopp eða pallíettujakka. Það er vel hægt að vera í pallíettujakka við gallabuxur og það er algjört æði. Svo er það skartið, þú ert alveg búin að skreyta þig í dag,“ segir Edda.

„Ég fann þessa eyrnalokka heima í húsleit og þetta eru bara einhverjir svona skrauteyrnalokkar úr einhverjum kristöllum sem ég keypti í Istanbúl í fyrra. Ég er alltaf með sömu eyrnalokkana sem ég hef ekki tekið úr mér í meira en tíu ár en mér finnst svolítið gaman að vera með einhverja eyrnalokka eða setja hálsmen og meiri lit á varirnar,“ segir Marta María.

Horfðu á þáttinn í heild sinni hér fyrir neðan. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab