Dómur er fallinn í Fabian-málinu – Stjúpmóðirin fékk þyngsta mögulega dóm
Pressan
Laugardaginn 21. nóvember 2026 19:00
Fabian var myrtur á hrottalegan hátt.
Dómsalurinn í Rostock í Þýskalandi var troðfullur þegar dómur var kveðinn upp í einu umtalaðasta morðmáli síðari tíma. Stjúpmóðir hins 8 ára Fabian var dæmd í ævilangt fangelsi fyrir að hafa myrt hann með því að stinga hann ítrekað í búkinn og að hafa síðan reynt að fela spor sín með því að hella eldfimum vökva yfir líkið og kveikja í því.
B.T. skýrir frá þessu og segir að vegna þess hversu gróft málið sé hafi dómurinn ákveðið að hin þrítuga stjúpmóðir geti ekki sótt um reynslulausn fyrr en eftir 15 ár í fyrsta lagi.
Fabian var lokkaður að heiman haustið 2025 og síðan myrtur. Það var vel þekkt að hann vildi alls ekki fara eitthvað með ókunnugum og því beindist rannsóknin fljótt að fólki sem hann gæti hafa borið mikið traust til.
Athygli lögreglunnar beindist fljótt að stjúpmóðurinni, ekki síst vegna þess að það var hún sem tilkynnti lögreglunni, fjórum dögum eftir hvarf Fabian, að hún hefði fundið lík hans nærri brunni nærri Klein Upahl, sem er ekki fjarri heimili hans.
Hún sagðist hafa verið að viðra hundinn sinn þegar hún fann líkið fyrir algjöra tilviljun.
Lögreglan í Mecklenburg-Vorpommern undraðist strax frá byrjun margt sem hún sagði. Það vakti sérstaka athygli lögreglunnar að það var einmitt stjúpmóðirin sem fann líkið og það á afskekktum stað þar sem hún var ekki vön að viðra hundinn sinn.
Réttarhöldin stóðu yfir í 34 daga. Stjúpmóðirin hefur neitað sök allt frá upphafi.
Saksóknarar segja að ýmis sönnunargögn hafi orðið henni að falli. Meðal annars upplýsingaleit hennar með aðstoð Google, skóför, trefjar úr fatnaði, nýþrifinn bíll og farsími sem slökkt var á á afgerandi tíma.
Fabian sást síðast á lífi við heimili móður sinnar í bænum Güstrow að morgni 10. október á síðasta ári.
Í ákærunni kom fram að hann hafi verið lokkaður út úr húsinu af stjúpmóðurinni sem hafði komið akandi á appelsínugula pallbílnum sínum.
Talið er að Fabian hafi verið ráðinn bani á næstu klukkustundum eftir þetta.
Lík hans, sem var að hluta brunnið, fannst þriðjudaginn 14. október.
Stjúpmóðirin var eitt sinn unnusta föður Fabian. Hún á sjálf dreng sem er ári yngri en Fabian.
Saksóknarar unnu út frá þeirri kenningu að öfundsýki hafi verið ástæðan fyrir morðinu. Sögðu saksóknararnir að konan hafi talið að Fabian stæði í vegi fyrir að hún gæti bjargað sambandinu við föður hans og fengið alla athygli hans.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗