De Niro var sendur heim úr veislu Jennifer Lawrence – Segir nú frá því sem gerðist

Fókus

Laugardaginn 21. nóvember 2026 19:00

Robert de Niro og Jennifer Lawrence eru góðir vinir. Mynd/Getty

Stórleikarinn Robert De Niro hefur staðfest að Jennifer Lawrence hafi beðið hann um að fara heim úr veislu sem haldin var í aðdraganda brúðkaups hennar árið 2019.

Hann segir leikkonuna þó hafa misskilið aðstæður, enda hafi honum alls ekki liðið illa í veislunni eins og Lawrence hélt.

De Niro rifjaði atvikið upp í viðtali hjá Vanity Fair ásamt leikurunum Ben Stiller og Ariönu Grande. Daily Mail greinir frá.

Lawrence sagði fyrst frá atvikinu árið 2024 og viðurkenndi þá að hún hefði verið afar stressuð fyrir brúðkaupið. Hún hefði haft miklar áhyggjur af því að gestunum liði vel og sérstaklega De Niro, sem virtist ekki þekkja neinn í veislunni.

Þegar hún sá hann ráfa um meðal ókunnugra gesta ákvað hún að grípa til sinna ráða.

Hún gekk að honum og hvíslaði einfaldlega: „Farðu heim.“

De Niro varð við beiðninni en segir nú að Lawrence hafi haft óþarfa áhyggjur.

„Mér leið bara ágætlega. Þetta var áhugaverð upplifun, en ég þekkti engan þarna,“ sagði leikarinn og bætti við að veislan hefði verið haldin á glæsilegum stað í New York.

Hann tók þó fram að honum hefði þótt vænt um umhyggju Lawrence.

„Það var fallega gert af Jennifer að vera svona næm á aðstæður mínar og halda að mér liði ekki vel. En það var allt í lagi með mig.“

De Niro og Lawrence eru góðir vinir og hafa leikið saman í þremur kvikmyndum, Silver Linings Playbook, Joy og American Hustle.

Lawrence giftist listaverkasalanum Cooke Maroney í október 2019.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab