Newcastle - Arsenal, staðan er 2:2
Arsenal og Newcastle skildu jöfn, 2:2, í 11. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á St. James' Park í kvöld.
Arsenal hefði með sigri í dag komið sér átta stigum á undan Manchester City og Brighton en er nú sex stigum á undan. Newcastle er í 12. sæti með 13 stig.
Arsenal byrjaði leikinn af krafti og átti Newcastle virkilega erfitt með að brjótast í gegnum pressu gestanna. Varð það til þess að Arsenal var með öll tök á leiknum í fyrri hálfleik.
Arsenal náði síðan loksins að brjóta ísinn á 33. mínútu þegar Havertz átti frábæra sendingu í gegn á Eberechi Eze sem þrumaði boltanum í netið og voru gestirnir með eins marks forystu í hálfleik.
Leikurinn gjörbreyttist hins vegar í seinni hálfleik þegar Ödegaard átti misheppnaða hreinsun úr vörninni. William Osula komst þá í boltann, renndi honum á Harvey Barnes sem smellti boltanum í netið.
Við það vaknaði Newcastle og stuðningsmenn liðsins til lífs og þá var það Arsenal sem átti í miklum erfiðleikum.
Á 62. mínútu fékk Dan Burn galopinn skalla inni í teig en lét verja frá sér frá David Raya. Raya varði hins vegar beint út í teiginn þar sem Malick Thiaw kom í seinni bylgjunni og potaði boltanum í netið og Newcastle yfir.
Newcastle hélt áfram að ógna marki Arsenal en á 78. mínútu náði Noni Madueke að jafna metin á ný og kom Arsenal aftur inn í leikinn.
Þá skiptu liðin aftur um hlutverk og var Arsenal betra liðið síðustu mínúturnar.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗