Haukar ríghalda í toppsætið

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði 10 mörk í dag.

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði 10 mörk í dag. Eyþór Árnason

Haukar styrktu stöðu sína á toppnum með sigri gegn HK, 30: 24, í 10. umferð úrvalsdeildar kvenna í handbolta í Kópavogi í dag.

Haukar eru því enn í efsta sæti deildarinnar, tveimur stigum á undan ÍBV, en HK nálgast botninn og er í áttunda sæti deildarinnar með aðeins fjögur stig.

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir átti frábæran leik en hún skoraði 10 mörk úr 14 skotum. Rakel Oddný Guðmundsdóttir var einnig öflug en hún skoraði níu mörk úr 11 skotum.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab