Þorpsbúarnir vilja kljúfa sig frá Bretlandi

Kosið var í Barnham í dag.

Kosið var í Barnham í dag.

Lítið enskt þorp kaus í dag að yfirgefa Bretland í táknrænni atkvæðagreiðslu til að mótmæla áformum stjórnvalda um að hýsa hundruð hælisleitenda á fyrrverandi herflugvelli í grenndinni.

Atkvæðagreiðslan í Barnham í austurhluta Englands kemur í kjölfar sambærilegrar mótmælaatkvæðagreiðslu í þorpinu Piddington í september, sem einnig snerist um áform stjórnvalda um að flytja hælisleitendur af hótelum í fyrrverandi herhúsnæði.

Íbúar voru spurðir hvort þeir styddu að sótt yrði um stöðu krúnunýlendu líkt og Jersey, Guernsey og Mön hafa.

Nær tvöfaldur íbúafjöldi

Á bilinu 400 til 500 manns höfðu kosningarétt í atkvæðagreiðslunni, sem hafði ekkert lagalegt gildi, og greiddu 257 atkvæði með sjálfstæði, 16 á móti og einn kjörseðill var ógildur. Í atkvæðagreiðslunni í Piddington í september voru 285 af 312 atkvæðum greidd með sjálfstæði.

Helen Beck, formaður íbúasamtaka Barnham, sagði eftir að niðurstaðan var kynnt að þorpsbúar byggjust ekki við að hún myndi breyta afstöðu stjórnvalda. Beck segir þorpið tilbúið að taka við sanngjörnum fjölda hælisleitenda en fjöldinn væri áhyggjuefni. 

Samkvæmt áformum stjórnvalda verður herstöðin nálægt þorpinu notuð til að hýsa 931 hælisleitendur en íbúar þorpsins eru 584. Íbúar bæði í Barnham og Piddington segjast hafa áhyggjur af öryggi heimamanna, einkum kvenna.

„Okkur hefur verið sagt að þeir hælisleitendurnir séu allir karlmenn. Við vitum ekki hvaðan þeir koma eða hver bakgrunnur þeirra er. Fólk kvíðir því að ganga eitt á ferð eða fara út með hundinn í myrkri ef 900 karlmenn bætast við á svæðinu,“ sagði Beck.

Allir á herstöðvar fyrir lok áratugs

Ríkisstjórn Bretlands, sem hefur verið við völd frá júlí 2024, hefur heitið því að hætta að nota hótel sem húsnæði fyrir farandfólk í kjölfar mikillar óánægju almennings.

Hún hyggst flytja alla sem nú dvelja á hótelum, stefna sem hún erfði frá síðustu ríkisstjórn Íhaldsflokksins, í fyrrverandi herstöðvar fyrir árið 2029.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab