Öruggur sigur Vals á Selfossi
Valur pakkaði saman Selfossi, 34: 23, í 10. umferð úrvalsdeildar kvenna í handbolta á Selfossi í dag.
Valur situr því enn í þriðja sæti deildarinnar, einu stigi á eftir ÍBV og þremur stigum á eftir Haukum. Selfoss er í fimmta sætinu með níu stig.
Valur var með tökin á leiknum allan tímann og var liðið komið með tíu marka forystu í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var hins vegar aðeins jafnari, þar sem Valur skoraði aðeins einu marki meira, en öruggur sigur Valskvenna var niðurstaðan.
Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir og Katla María Magnúsdóttir voru frábærar í dag en þær skoruðu báðar níu mörk úr tíu skotum.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗