Vill hækka mörk tollfrjálsra innkaupa í 150.000
Nú eru mörkin 88 þúsund krónur og myndu þau því hækka um 62 þúsund krónur, eða rúm 70%. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, leggur til að ferðamenn búsettir hér á landi megi hafa með sér tollfrjálsar verslunarvörur að verðmæti allt að 150 þúsund krónur við komu til landsins.
Þetta kemur fram í breytingartillögu við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld.
Nú eru mörkin 88 þúsund krónur og myndu þau því hækka um 62 þúsund krónur, eða rúm 70%.
Fjárhæðin miðast við smásöluverð á innkaupsstað. Hún gildir bæði um samanlagt verðmæti varningsins og hámarksverðmæti einstaks hlutar. Innan markanna telst einnig varningur sem keyptur er í tollfrjálsri verslun hér á landi.
Börn yngri en 12 ára eiga rétt á helmingi heimildarinnar og myndu mörk þeirra því hækka úr 44 þúsund krónum í 75 þúsund.
Bryndís leggur jafnframt til að mörk fyrir skipverja og flugverja búsetta hér á landi hækki úr 32.500 krónum í 56 þúsund krónur fyrir ferðir sem standa skemur en 15 daga. mbl.is/Eyþór
Mörkin hækki einnig hjá áhöfnum
Bryndís leggur jafnframt til að mörk fyrir skipverja og flugverja búsetta hér á landi hækki úr 32.500 krónum í 56 þúsund krónur fyrir ferðir sem standa skemur en 15 daga.
Í lengri ferðum myndu mörkin hækka úr 65 þúsund krónum í 113 þúsund krónur. Hámarksverðmæti einstaks hlutar yrði 56 þúsund krónur í báðum tilvikum.
Breytingartillagan var lögð fram 20. nóvember við frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld. Frumvarpinu var vísað til efnahags- og viðskiptanefndar að lokinni fyrstu umræðu sama dag.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
