Sjö aðvörunarmerki um heilaæxli
Pressan
Laugardaginn 21. nóvember 2026 18:30
Æxli í heila. Mynd úr safni.
Þú hefur eflaust lent í því að vera með bankandi höfuðverk, einbeitingin átti undir högg að sækja og þú áttir erfitt með að koma fyrir þig orði. Í langflestum tilfellum er þetta vegna þreytu, stress eða svefnskorts. En heilinn notar þessi sömu einkenni þegar eitthvað annað er að.
Í sænskri rannsókn, sem var birt í vísindaritinu Neuro-Oncology Practice, voru fyrstu einkennin, hjá fólki sem greindist með glioblastom (sem er ágengt heilaæxli), greind. Fólkið greindist á árunum 2018 til 2021. 1.458 fullorðnir tóku þátt í rannsókninni.
Dönsku krabbameinssamtökin benda á að umrædd einkenni séu ekki sönnun um heilaæxli í sjálfu sér því langoftast séu þau merki um eitthvað annað.
Það er munstrið sem telur. Merki sem koma smám saman á vikum eða mánuðum án þess að hægt sé að skýra þau á annan hátt. Þau þarf að skoða betur.
Þau sjö einkenni sem leiddu oftast til þess að fólkið greindist með heilaæxli eru:
Staðbundin taugakerfis einkenni – Þau komu fram hjá 64% þátttakendanna. Þessi einkenni eru lömun eða veikleiki í handlegg eða fótlegg, skynjunartruflanir og vandamál við að stjórna líkamanum.
Breytingar á hugrænni getu – Þær gerðu vart við sig hjá 46% þátttakendanna. Þetta geta til dæmis verið persónuleikabreytingar, minna frumkvæði, erfiðleikar við að skipuleggja eða tilhneiging til að hegða sér öðruvísi en venjulega.
Minnisvandamál – Þegar þessi vandamál nánast hrúgast upp á skömmum tíma án nokkurrar greinilegrar ástæðu, þá eru það oft aðstandendur sjúklingsins sem veita þessu athygli.
Talerfiðleikar – Þetta getur komið fram sem erfiðleikar við að finna réttu orðin. Röng orð eru notuð eða erfiðleikar við að taka þátt í samtali.
Höfuðverkur – Þetta var fyrsta einkennið hjá 36% þátttakendanna. Hér er ekki verið að ræða um höfuðverk í einn dag, heldur viðvarandi og jafnvel sífellt verri höfuðverk vikum saman. Þetta þarf að rannsaka, sérstaklega ef verkurinn er mestur á morgnana.
Krampi/flog – 29% fengu krampa. Dönsku heilaæxlasamtökin segja krampa/flog vera eitt af algengustu fyrstu einkennum sem verða til að heilaæxli greinist. Ef fullorðinn fær krampa, án þess að vera flogaveikur fyrir, þarf að rannsaka það.
Sjóntruflanir – Sjóntruflanir komu fram hjá 28% þátttakendanna. Þetta getur verið merki um of háan þrýsting í heilanum. Þetta getur komið fram sem þokukennd sjón, fólk sér tvöfalt eða glímir við blinda bletti. Þessu fylgir oft ógleði eða uppköst á morgnana.
Það sem stakur höfuðverkur þýðir ekki
Stakur höfuðverkur, lélegur nætursvefn eða gleymdur lykill eru ekki einkenni heilaæxlis. Einkennin eru hvert um sig algeng af öðrum orsökum.
Það er þegar fleiri en eitt einkenni koma fram saman, eða þegar alveg nýtt einkenni kemur fram og versnar á nokkrum vikum sem þarf að ráðfæra sig við lækni.
Dönsku krabbameinssamtökin benda á nýja gerð höfuðverks eða skýrar breytingar á höfuðverk á þremur til fjórum vikum, krampa/flogakast hjá fullorðnum og breytingar á hugrænni getu sem einkenni sem þarf að gæta vel að.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗