Sterkur endurkomusigur á Akureyri

Sandra Erlingsdóttir er fyrirliði ÍBV og landsliðsins.

Sandra Erlingsdóttir er fyrirliði ÍBV og landsliðsins. mbl.is/Anton Brink

ÍBV vann sterkan útisigur gegn KA/Þór, 35: 32, í 10. umferð úrvalsdeildar kvenna í handbolta á Akureyri í dag.

ÍBV situr nú í öðru sæti deildarinnar með 17 stig, tveimur stigum á eftir Haukum, á meðan KA/Þór er í sjöunda sætinu með aðeins fjögur stig.

Heimakonur byrjuðu leikinn af krafti og voru með þriggja marka forystu í hálfleik. Eyjakonur létu það hins vegar ekki trufla sig og náðu að kreista fram sigurinn í lokin.

Sandra Erlingsdóttir átti frábæran leik en hún skoraði 11 mörk úr aðeins 14 skotum í dag. Markahæst í liði heimakvenna var Lydía Gunnþórsdóttir en hún skoraði sjö mörk úr átta skotum.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab