Fjórar vikur án ofurunninna matvæla – Þunglyndiseinkennin minnkuðu
Pressan
Laugardaginn 21. nóvember 2026 17:30
Beikon er vinsælt en um leið ofurunnin matvara.
Hefur þú lent í því að ná þér í eitthvað fljótlegt þegar þörfin kallar? Til dæmis kartöfluflögur, gosdrykk, tilbúinn rétt úr frystinum?
Í nýrri rannsókn, sem vísindamenn við University of California í San Francisco gerðu, kom í ljós að matur af þessu tagi, ofurunninn matur, geti haft mælanleg áhrif á þunglyndi.
Fullorðnir þátttakendur í rannsókninni, sem minnkuðu neyslu sína á ofurunnum matvælum um meira en 85% í fjórar vikur, fengu mun færri stig þegar þunglyndi þátttakendanna var mælt.
Rannsóknin var lítil, aðeins 20 einstaklingar tóku þátt í henni. Allir glímdu þeir við mikið þunglyndi. 19 þeirra luku rannsókninni.
Þátttakendunum var skipt tilviljanakennt í hópa. Annar hópurinn innbyrti mjög lítið af ofurunnum matvælum í fjórar vikur á meðan hinn hélt sig við venjulega mataræði sitt. Eftir vikurnar fjórar víxluðu hóparnir síðan mataræðinu og fylgdu því næstu fjórar vikurnar.
Vísindamennirnir mældu þunglyndið eftir fjórum viðurkenndum skölum. Allir sýndu þeir lækkun á þunglyndinu þegar þátttakendurnir neyttu mjög lítils af ofurunnum matvælum.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗