Trump segist óttast eitt eftir dauðann – „Ég vona að mín verði saknað“
Pressan
Laugardaginn 21. nóvember 2026 17:30
Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Í nýlegu viðtali við 60 mínútur hjá CBS sjónvarpsstöðinni viðurkenndi Donald Trump að of harkalega hefði verið gengið fram við að vísa útlendingum úr landi. En Trump ræddi meira en þetta í þættinum, til dæmis hvernig hann vill að fólk muni eftir honum að honum látnum og lífið eftir dauðann.
„Ég vona að mín verði saknað,“ sagði Trump. „Mér finnst ég hafa gert góða hluti,“ bætti hann við.
Hann sagðist síðan vera trúaður og þess vegna vonist hann til að komast í himnaríki eftir andlátið. „Ég vil ekki enda í helvíti,“ sagði hann.
Þegar hann var spurður hvort hann gæti fyrirgefið pólitískum andstæðingum sínum eins og Demókratanum Nancy Pelosi og James Comey, fyrrum forstjóra alríkislögreglunnar FBI, sagðist hann ekki geta það og hlýtur það að vekja athygli margra því fyrirgefning er mikilvægur hlutur í kristinni trú.
„Það get ég ekki, nei, af því að ég hata suma af óvinum mínum og það mun ég alltaf gera,“ sagði forsetinn.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗