Gleymir seint svari ungu konunnar

Adela Raz segir fund með ungri afganskri konu hafa minnt sig á hvers vegna hún mætti ekki gefast upp í baráttunni fyrir réttindum kvenna. Ljósmynd/María Kjartansdóttir

Þegar Adela Raz, fyrrverandi sendiherra Afganistans í Bandaríkjunum, spurði unga afganska konu í stjórnmálafræðinámi hvað hana langaði að gera í framtíðinni var svarið skýrt. Hún vildi verða næsti forseti Afganistans.

Raz rifjar upp samtal þeirra í viðtali við mbl.is. Hún var hér á landi í vikunni vegna Heimsþings kvenleiðtoga í Hörpu.

Konurnar hittust á fundi kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir tveimur árum. Unga konan hafði fengið styrk til náms í Bandaríkjunum og vildi vera tilbúin þegar aðstæður í heimalandinu breyttust.

Einurð ungu konunnar fékk Raz til að hugsa. Hvernig gæti hún sjálf gefist upp þegar unga konan stefndi enn ótrauð að markmiði sínu?

„Ég get ekki gefist upp. Ég get það alls ekki. Ég verð að halda áfram og við verðum að berjast,“ segist Raz hafa hugsað.

Skólastúlkur í Herat í október 2012. Adela Raz segir skólagöngu stúlkna hafa verið meðal mikilvægra framfara í Afganistan áður en talíbanar tóku aftur völd. Úr safni. AFP/Aref Karimi

„Allt breyttist á einni nóttu“

Raz var fyrst kvenna til að gegna embætti fastafulltrúa Afganistans hjá Sameinuðu þjóðunum og var síðar sendiherra landsins í Bandaríkjunum.

Hún segir erfitt að sjá fyrir sér hvenær hagur afganskra kvenna og stúlkna gæti vænkast. Sjálf bindi hún vonir við yngri kynslóðina, sem þekki sögu Afganistans og aðrar hliðar á landinu en þá sem nú blasir við.

Hún lýsir Afganistan sem fallegu landi með ríka og fjölbreytta menningu. Núverandi ástand samræmist ekki þeirri mynd af landinu sem hún og fleiri Afganar þekki.

Hún rifjar upp að fyrir aðeins fimm árum hafi Afganar getað litið stoltir yfir það sem áunnist hafði á tveimur áratugum. Stúlkur hafi aftur sest á skólabekk, konur gegnt forystuhlutverkum í samfélaginu og réttindi þeirra verið tryggð í stjórnarskrá landsins.

„Allt breyttist á einni nóttu,“ segir Raz um valdatöku talíbana. „Í dag lifa afganskar konur í algjöru myrkri, undir stjórn sem lítur ekki einu sinni á þær sem jafningja.“

Talíbanar standa vörð við Háskólann í Kabúl í október 2022. Adela Raz segir ávinning tveggja áratuga hafa horfið á einni nóttu við valdatöku þeirra. Úr safni. AFP/Wakil Kohsar

Viðvörunarmerki fyrir Íslendinga

Spurð hvaða lærdóm Íslendingar geti dregið af reynslu Afgana segir Raz að stöðugt þurfi að standa vörð um áunnin réttindi. Ekki sé hægt að líta á árangur í réttindabaráttu sem lokamarkmið og telja síðan verkinu lokið.

Stofnanir sem ætlað sé að vernda réttindi fólks veiti í sjálfu sér enga tryggingu fyrir því að þau haldist. Þeir sem stýri stofnununum geti líka misbeitt valdi sínu.

Hún bendir á að bakslag í réttindum kvenna, borgaralegum réttindum og mannréttindum sjáist víða um heim. Það sé merki um að leggja þurfi enn meira á sig til að verja þau.

Raz segir eitt viðvörunarmerkið vera þegar fólki fer að þykja eðlilegt að þrengt sé að borgaralegu samfélagi.

Annað merki sé þegar fólki þykir óþarfi að fjalla um sögu réttindabaráttunnar í skólum. Þeirri sögu þurfi sérstaklega að halda á lofti í löndum þar sem mikið hafi áunnist í jafnréttismálum.

„Við þurfum að minna yngri kynslóðina á að við höfum ekki alltaf notið þeirra réttinda sem við höfum í dag. Á undan okkur komu öflugar konur og karlar sem lögðu hart að sér til að tryggja þau,“ segir hún.

Raz segir hið sama eiga við um lýðræðið. Stöðugt þurfi að standa vörð um það. Þótt glitti í von megi ekki líta svo á að verkinu sé lokið.

Kona afhýðir vínber fyrir barn sitt í Kandahar. Adela Raz segir afganskar konur hafa verið sviptar grundvallarréttindum og kallar eftir viðbrögðum alþjóðasamfélagsins. AFP/Sanaullah Seiam

Vill að brot gegn konum hafi afleiðingar

Raz telur afganskar konur fá of litla athygli á alþjóðavettvangi. Mestu skipti þó hvernig ríki heims bregðist við þegar stjórnvöld svipta konur grundvallarréttindum með lögum.

„Við sitjum bara hjá, horfum á og vonum það besta,“ segir hún um viðbrögð alþjóðasamfélagsins.

Hún kallar eftir því að komið verði á kerfi til að draga stjórnvöld og einstaklinga til ábyrgðar fyrir alvarleg brot gegn réttindum kvenna.

Konur bera börn sín í Spin Boldak í Afganistan. Adela Raz segir reynslu landsins sýna hversu hratt áunnin réttindi geti glatast. AFP/Sanaullah Seiam

Að hennar mati þurfi að styrkja alþjóðlegar stofnanir og réttarkerfi og veita þeim auknar heimildir. Þótt reyni nú á gildi þeirra þýði það ekki að þau séu óþörf eða eigi að leggja þau niður.

Skyldan til að bregðast við brotum gegn réttindum kvenna nái jafnframt langt út fyrir landamæri Afganistans.

„Við berum ekki aðeins ábyrgð gagnvart afgönskum konum, heldur öllum konum heimsins.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab