Ráðist á skip skammt frá landhelgi Finna
Drónaárás var gerð á rússneskt flutningaskip sem sigldi um austanvert Eystrasaltið á laugardag og kviknaði eldur um borð. Finnsk yfirvöld greina frá þessu.
Nokkrum klukkustundum síðar lék grunur á að rússnesk þyrla hefði rofið finnska lofthelgi, að sögn finnska varnarmálaráðherrans, sem telur hugsanlegt að atvikin tengist.
Finnska varnarmálaráðuneytið tilgreindi ekki uppruna drónans sem hæfði skipið, en Petteri Orpo forsætisráðherra gaf í skyn að atvikið tengdist stríði Úkraínu og Rússlands.
„Stríðið teygir sig nú inn í okkar næsta nágrenni ... Úkraína hefur rétt til að verjast árásaraðilanum,“ skrifaði Orpo á X.
Gefið í langdrægar árásir
Úkraína, sem hefur nú í fimm ár varist innrás Rússa, hefur aukið langdrægar árásir sínar á Rússland langt handan víglínunnar.
„Á laugardagsmorgun gerðu finnsku varnarsveitirnar drónaárás á rússneskt flutningaskip vestur af Suursaari, í austanverðum Finnlandsflóa, á alþjóðlegu hafsvæði,“ sagði ráðuneytið í yfirlýsingu.
Þar kom fram að skipið héti Sparta II, en samkvæmt vefsíðunni Opensanctions sætir það refsiaðgerðum Úkraínu og Bandaríkjanna. Á vefsíðunni segir að skipið sé grunað um að hafa flutt vopn frá Sýrlandi til Rússlands.
Áhöfnin ætlar að halda áfram
Finnska landamæragæslan, sem send var á vettvang, sá skipið í ljósum logum reka í átt að finnskri landhelgi eftir árásina.
„Eins og staðan er núna stafar öðrum skipum engin hætta af ástandinu,“ sagði landamæragæslan í yfirlýsingu.
Ilja Iljin, liðsforingi í strandgæslunni, sagði í samtali við AFP að ekki væri vitað hvort áhöfn Sparta II hefði orðið fyrir manntjóni, en sést hefði til nokkurra skipverja berjast við eldinn.
„Við erum með skip, fyrsta varðskipið okkar, á vettvangi, tilbúið til rýmingar ef þörf krefur. En það sem við vitum núna er að áhöfnin hefur ekki yfirgefið skipið og fylgir hefðbundnum slökkviverklagsreglum,“ sagði hann.
Aleksandr Drozdenko, ríkisstjóri Leníngrad-héraðs í Rússlandi, greindi frá því á rússneska samskiptamiðlinum Max að ástandið um borð væri undir stjórn.
„Að sögn áhafnarinnar var ekki þörf á rýmingu. Ástandið er undir stjórn. Áhöfn skipsins sinnir nauðsynlegum aðgerðum og hyggst halda för sinni áfram,“ sagði hann.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗