Afmælisveisla endaði með ólýsanlegum harmleik – Þrjú börn misstu foreldra sína

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Laugardaginn 21. nóvember 2026 17:00

Jay og Kristen Ruskey. Mynd/GoFundMe

Börn bandarískra hjóna, sem fundust bæði látin eftir að hafa gist hjá vinum í kjölfar afmælisveislu í febrúar síðastliðnum, hafa höfðað skaðabótamál vegna dauða foreldra sinna.

Hjónin John „Jay“ Ruskey, 53 ára, og Kristen Ruskey, 49 ára, voru þriggja barna foreldrar og ráku saman landbúnaðarfyrirtækið Good Land Organics í Kaliforníu. Þau sóttu afmælisveislu í bænum Cambria þann 7. febrúar síðastliðinn þar sem á milli 50 og 60 gestir voru saman komnir.

Gestgjafarnir buðu hjónunum að gista og komu þeim fyrir í gestaherbergi á heimili sínu. Engan grunaði þá að þau ættu ekki afturkvæmt þaðan.

People fjallar um málið og hefur undir höndum gögn vegna skaðabótamálsins sem og skýrslu dánardómstjóra.

Veiktist alvarlega um nóttina

Klukkan hálffimm að morgni hringdi Kristen í neyðarlínuna og greindi frá því að eiginmaður hennar væri mjög veikur. Hann kastaði upp, hafði misst stjórn á hægðum og sýndi einkenni sem minntu á krampakast.

Þegar sjúkraflutningamenn komu á staðinn sagði Kristen þeim að eiginmaður hennar hefði neytt súkkulaðis sem innihélt ofskynjunarsveppi og taldi hún að vanlíðan hans mætti rekja til þess.

Sjúkraflutningamenn ráðlögðu Jay að fara á sjúkrahús til frekari skoðunar en hann afþakkaði það. Eftir að þeir yfirgáfu húsið fóru hjónin aftur að sofa í gestaherberginu.

Nokkrum klukkustundum síðar fannst Kristen meðvitundarlaus á gólfi þvottahússins og Jay í rúminu, án púls og öndunar. Tilraunir til endurlífgunar báru ekki árangur og voru þau bæði úrskurðuð látin á staðnum.

Enginn áttaði sig á hættunni

Síðar kom í ljós að hjónin höfðu látist af völdum kolmónoxíðeitrunar og var dauði þeirra skilgreindur sem slys.

Kolmónoxíð er litlaus og lyktarlaus lofttegund sem getur valdið meðal annars höfuðverk, ógleði, svima, rugli og meðvitundarleysi. Við alvarlega eitrun getur hún leitt til dauða.

Í málshöfðun barnanna kemur fram að einkenni Jay um nóttina hafi samræmst einkennum alvarlegrar kolmónoxíðeitrunar. Þar sem Kristen sýndi ekki sambærileg einkenni á þeim tíma og enginn viðvörunarbúnaður hafði gefið frá sér hljóð hafi enginn áttað sig á því hvað væri að gerast.

Segja viðvörunarbúnað hafa verið ótengdan

Börnin þrjú hafa höfðað mál gegn eigendum hússins og framleiðanda vatnshitara sem var staðsettur við þvottahús heimilisins.

Í málshöfðuninni er því haldið fram að útblásturskerfi vatnshitarans hafi gefið sig með þeim afleiðingum að kolmónoxíð barst inn í þvottahúsið og þaðan inn í gestaherbergið þar sem hjónin sváfu.

Þá er því haldið fram að reyk- og kolmónoxíðskynjari, sem staðsettur var fyrir utan herbergið, hafi verið ótengdur.

Börnin telja jafnframt að framleiðanda búnaðarins hafi um árabil verið kunnugt um mögulega ágalla á tengingum útblásturskerfisins en engu að síður haldið áfram að selja búnaðinn.

Eigendur hússins eru einnig sakaðir um að hafa vanrækt eftirlit og viðhald.

David Shay, lögmaður barnanna, segir að um hræðilegan harmleik hafi verið að ræða sem hefði mátt koma í veg fyrir.

„Áhersla okkar er áfram á að leiða staðreyndir málsins í ljós og tryggja að þeir sem bera ábyrgð verði látnir svara fyrir hana,“ segir hann.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab