Krónan opnaði á Höfn í morgun

Krónan opnaði nýja matvöruverslun á Höfn í Hornafirði í morgun við góðar undirtektir heimamanna. Margir Hornfirðingar voru mættir snemma dags til að kynna sér nýju verslunina og var líf og fjör í búðinni frá fyrstu stundu.

Verslunin er staðsett í nýju, 1.200 fermetra húsnæði að Hafnarbraut 60A, á svæðinu við gömlu mjólkurstöðina. Hún er sú 27. í röðinni hjá Krónunni og sú tíunda utan höfuðborgarsvæðisins. Með opnuninni verða til um 30 ný störf á svæðinu, um leið og Snjallverslun er komin í fulla virkni. 

„Það var ótrúlega gaman að opna loksins dyrnar á Höfn og bjóða Hornfirðinga velkomna í Krónuna. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá vinnu undanfarinna mánaða verða að veruleika og við höfum fundið fyrir miklum áhuga og hlýjum móttökum frá heimamönnum. Við viljum ekki bara opna nýja matvöruverslun heldur verða virkur þátttakandi í samfélaginu, byggja upp góð tengsl við heimamenn og skoða tækifæri til samstarfs við framleiðendur á svæðinu,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, í tilkynningu.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab