Chelsea niðurlægt á Brúnni

Noah Okafor skoraði tvennu í stórsigri Leeds í dag.

Noah Okafor skoraði tvennu í stórsigri Leeds í dag. AFP/Henry Nicholls

Leeds niðurlægði Chelsea, 4:1, í 11. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á Stamford Bridge í dag. 

Leeds heldur þar með góðu gengi sínu áfram og er liðið komið upp í sjötta sæti deildarinnar með 17 stig á meðan Chelsea dettur niður í áttunda sætið með 16 stig. 

Chelsea byrjaði leikinn vel og á 25. mínútu leiksins renndi Morgan Rogers boltanum inn fyrir á Emmanuel Emegha sem þrumaði boltanum í nærhornið og kom heimamönnum yfir.

Leeds var ekki lengi að svara fyrir sig þar sem aðeins þremur mínútum seinna jafnaði Noah Okafor metin eftir afskaplega lélegan varnarleik Chelsea-manna.

Okafor fagnar fyrra marki sínu.

Okafor fagnar fyrra marki sínu. AFP/Henry Nicholls

Eftir jöfnunarmark Leeds virtist Chelsea alveg gefast upp og var Leeds með öll tök á leiknum á meðan Chelsea sat bara og horfði á gestina spila í kringum sig og skapa sér fullt af góðum færum en þrátt fyrir það var jafnt í hálfleik.

Á 51. mínútu leiksins reyndi James Justin þrumuskot í átt að marki Chelsea sem fór í hönd Rogers og benti Michael Oliver dómari á vítapunktinn. Dominic Calvert-Lewin steig á punktinn og skoraði af miklu öryggi og kom Leeds í forystu.

Vont varð verra fyrir Chelsea því sex mínútum seinna skoraði Okafor sitt annað mark og þriðja mark Leeds.

Chelsea komst síðan inn í leikinn á lokamínútum seinni hálfleiksins þar sem Leeds féll aðeins til baka, sátt með tveggja marka forystu, en gerði ekkert af viti með boltann og á fyrstu mínútu uppbótartíma fullkomnaði Brenden Aaronson niðurlægingu Chelsea er hann skoraði fjórða mark gestanna.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab