Bandaríkin takmarka samstarf við Kanada

Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, gaf fyrirmælin út.

Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, gaf fyrirmælin út. AFP

Bandaríkin hafa ákveðið að takmarka hernaðarsamstarf sitt við Kanada.

Bandaríski fjölmiðillinn Washington Post segir Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hafa gefið fyrirmæli þess efnis út í minnisblaði sem hann á að hafa dreift í vikunni. 

Ekki var ljóst nákvæmlega hversu víðtækar takmarkanirnar eru og Washington Post sagðist ekki hafa séð minnisblaðið.

Stirð samskipti ríkjanna

„Stríðsmálaráðuneytið grípur til ráðstafana til að tryggja að samskipti þess við Kanada þjóni áþreifanlegum varnarmarkmiðum Bandaríkjanna og styðji að lokum við endurnýjað varnarsamstarf,“ sagði Sean Parnell, aðaltalsmaður Pentagon, við AFP þegar hann var beðinn um að tjá sig um fréttina.

Parnell segir þó að fyrirmælin hafi ekki áhrif á samstarf á sviði leyniþjónustu í varnarmálum, sameiginlega herstjórn ríkjanna tveggja, NORAD, eða samstarf innan NATO. NORAD er sameiginleg herstjórn Bandaríkjanna og Kanada sem ber ábyrgð á eftirliti með og vörnum lofthelgi Norður-Ameríku.

Fregnirnar af takmörkununum berast á sama tíma og samskipti þessara gömlu bandamanna eru stirð í forsetatíð Donalds Trump sem hefur ítrekað gefið í skyn að Kanada ætti að verða 51. ríki Bandaríkjanna.

Trump hefur lagt tolla á kanadískar vörur og gagnrýnt útgjöld Ottawa til varnarmála, en Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, hefur staðfastlega hafnað öllum hugmyndum um innlimun.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab