Albert sneri aftur í sigri
Lazio trónir á toppi ítölsku A-deildarinnar með 32 stig, fjórum stigum á undan Inter Mílanó. AFP/Alberto Pizzoli
Albert Guðmundsson sneri aftur er Lazio vann auðveldan sigur gegn Lecce, 3:0, í 12. umferð A-deildar Ítalíu í knattspyrnu í dag.
Albert hafði verið að glíma við meiðsli á öxl síðan hann fór meiddur af velli í leik Íslands gegn Eistlandi í lok september og hefur ekki spilað síðan.
Hann sneri hins vegar aftur á völlinn í dag en hann kom inn sem varamaður á 88. mínútu, en þá hafði Lazio komið sér í tveggja marka forystu þar sem Tijjani Noslin skoraði bæði mörkin.
Davide Frattesti bætti síðan við þriðja markinu á 90. mínútu leiksins og kórónaði 10. sigur Lazio í deildinni.
Lazio er því enn í efsta sæti deildarinnar með 32 stig en liðið hefur enn ekki tapað leik.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗