Fjöldaflótti frá Rússlandi – Viðlíka hefur ekki sést í 17 ár
Pressan
Laugardaginn 21. nóvember 2026 16:30
Mótmælendur eru handteknir ef þeir láta á sér kræla og margir þeirra flýja land. Mynd:Getty
1,13 milljónir. Þetta er sá fjöldi Rússa sem yfirgaf ættjörðina frá júlí fram í september á þessu ári að sögn dagblaðsins Verstkas. Þetta er mesti brottflutningurinn í 17 ár.
Verstkas byggir þetta á tölum frá rússneska landamæraeftirlitinu. Ef þessar tölur eru réttar þá eru þær mjög athyglisverðar.
Meira að segja 2022 þegar Rússar flúðu í stríðum straumum frá ættjörðinni vegna herkvaðningar Pútíns náði talan ekki þessum hæðum eins og nú frá júlí fram í september.
Ekki kemur fram í tölum landamæraeftirlitsins af hverju fólkið yfirgaf landið og því geta bæði ferðamenn og fólk í viðskiptaerindum verið með í tölunni.
Verstka segir að óttinn við nýja herkvaðningu hafi haft mikil áhrif á þennan mikla landflótta.
Orðrómar um herkvaðningu hafa verið á kreiki um hríð og koma ekki mörgum á óvart miðað við slælegt gengi rússneska hersins á vígstöðvunum. Mannfallið er gríðarlegt og því mikil þörf á að fá nýja menn til liðs við herinn.
Vinsælustu áfangastaðir Rússa, sem yfirgefa ættjörðina, eru Armenía, Georgía og Serbía.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗