Þetta hafi sett svip sinn á leiki Strákanna okkar

Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir allt það helsta í Íþróttavikunni, sem kemur út alla föstudaga.

Íslenska landsliðið vann tvo góða sigra, 5-0 gegn Búlgaríu og 3-0 gegn Lúxemborg, í C-deild Þjóðadeildarinnar á dögunum og tryggði sér sæti í B-deild.

„Þú getur bara unnið það sem er fyrir framan þig og það átti vel við um þessa tvo leiki,“ sagði Helgi. 

„Þessi lið voru í vandræðum, voru ekki að fara að ná tveimur efstu sætunum, og vegna breytinga á Þjóðadeildinni gátu þau ekki fallið. Það litaði svolítið C-deildina og við bara heppni með það.

Þetta voru tveir grjótsolid sigrar og ég ætla ekkert að skamma menn fyrir að stíga aðeins af bensíngjöfinni í fimbulkuldanum í Laugardalnum í seinni leiknum. Þetta var komið í hús,“ sagði Hörður.

Þátturinn er í spilaranum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab