Rífandi gangur í rúningnum

Daníel Atli að rýja hrútinn sinn sem heitir Fróði. Hann gerir ráð fyrir að rýja allt að 3.500 kindur í haust.

„Það er gaman að rýja en auðvitað verða dagarnir stundum langir þegar þetta er unnið í akkorði eins og stundum er. Maður hittir marga á bæjunum og það er gaman að spjalla við fólkið. Ég hef kynnst mörgum í þessu starfi en ég viðurkenni að ég get verið þreyttur eftir stóru dagana.“ Þetta segir Daníel Atli Stefánsson, sem býr í Hrísateigi í Reykjahverfi, en haustrúningur stendur nú yfir og það er nóg að gera.

Daníel Atli hefur verið í verktöku í rúningi til margra ára og er þekktur fyrir að vera fljótur með hverja kind enda er ekki slegið slöku við. Hann hefur alrúið allt að 250 kindur á dag, þegar mest hefur verið að gera, en það er mikið að rýja svo margar kindur á ekki á lengri tíma. Daníel fór snemma að fást við sauðaklippurnar og var ekki gamall þegar hann fór að rýja heima hjá sér, en hann ólst upp í Klifshaga í Öxarfirði þar sem er margt sauðfé. Hann var í búfræðinámi á Hvanneyri og þá tók hann stundum að sér rúning á bæjunum eftir skóla á daginn. Það gat verið tímafrekt og þá þurfti að sitja yfir verkefnum sem átti að skila daginn eftir í skólanum langt fram eftir kvöldi og jafnvel fram á nætur. Þetta mátti ekki hafa neikvæð áhrif á námið.

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab