„Það er hægt að ramma inn svo miklu fleira en bara hefðbundnar myndir“

Elvar Már Jóhannesson hjá Innrammaranum.

Hefurðu pælt í hvað góður rammi getur gert fyrir myndina og heimilið? Það veit Elvar Már Jóhannesson hjá Innrammaranum enda byrjaði hann að innramma myndir um fermingaraldur. Hann segir skemmtilegt að sjá hvað innrömmun hefur mikil áhrif á verkin.

Hvort sem það er fjölskylduljósmynd, teikning eftir barnið þitt eða fallegt listaverk getur góður rammi gert gæfumuninn. Elvar Már Jóhannesson hjá Innrammaranum á Rauðarárstíg hefur verið viðloðandi bransann til fjölda ára. „Ég byrjaði í innrömmun um fermingaraldur, þá í sumarstarfi hjá bróður mínum og frænda okkar í bílskúr í Kópavogi. Ég vann svo við þetta samhliða skóla um tíma áður en leiðin lá í önnur störf. Fyrir rúmum áratug sneri ég aftur í innrömmunina í fullu starfi og hef starfað við hana síðan með sömu mönnum.“

Hvað heillar þig mest við starfið?

„Það skemmtilegasta er hversu fjölbreytt verkefnin eru og hvað innrömmunin getur haft mikil áhrif á verkin. Það er alltaf gaman að finna réttu umgjörðina og sjá hvað myndin nýtur sín miklu betur. Stundum þarf að prófa nokkrar útfærslur áður en allt smellur saman.“

Innrammarinn býður upp á alhliða innrömmun, allt frá ljósmyndum og persónulegum munum til verðmætra listaverka. Elvar segir starfsfólkið leggja mikla áherslu á vandaða vinnu og að finna réttu umgjörðina fyrir hvert verk enda tveir starfsmenn með Guild Certified Framer-fagvottun og einn auk þess með GCF Advanced-vottun í Conservation Framing sem snýr að varðveislu og verndun listaverka.

„Innrömmun getur breytt ótrúlega miklu fyrir mynd eða listaverk. Sama mynd getur fengið gjörólíkt yfirbragð eftir því hvaða rammi og karton er valið. Einfaldur eikarrammi getur gefið mynd hlýlegra yfirbragð á meðan svartur rammi getur skapað meiri andstæður. Kartonið skiptir líka oft mun meira máli en fólk gerir sér grein fyrir. Það gefur myndinni meira rými og getur dregið fram liti og smáatriði í verkinu,“ segir Elvar.

Hvar byrjarðu þegar velja á umgjörð?

„Ég byrja yfirleitt á að skoða verkið sjálft og heyra hvað eigandinn hefur í huga. Svo skiptir líka máli hvar myndin á að hanga og hvernig umhverfið er. Sumir vilja hafa umgjörðina látlausa á meðan aðrir vilja gera meira úr henni. Þetta þarf allt að fara saman og það er ekkert eitt rétt svar.“

Hvernig hafa litur, efni og breidd rammans áhrif á heildina?

„Þetta hefur allt áhrif á hvernig við upplifum myndina. Mjóir og einfaldir rammar henta oft vel þegar við viljum að myndin sjálf fái alla athyglina, en breiðari rammar geta gefið henni meiri þunga og karakter. Viðarrammar gefa oft hlýlegt yfirbragð á meðan svartir eða hvítir rammar geta verið stílhreinni. Það fer samt alltaf eftir verkinu og stundum kemur besta útkoman úr samsetningu sem maður hefði ekki endilega valið í fyrstu.“

Sérðu einhverjar breytingar á því hvað fólk vill ramma inn og hvers konar umgjörð það velur?

„Mér finnst áhuginn á einfaldari og stílhreinni römmum vera mjög áberandi. Náttúrulegir viðartónar, sérstaklega eik, og mjóir svartir rammar eru til dæmis vinsælir. Það er líka gaman að sjá að fólk er að gera meira úr sínum eigin ljósmyndum og persónulegum myndum í stað þess að hugsa eingöngu um hefðbundin listaverk.“

Elvar Már Jóhannesson hjá Innrammaranum hefur verið viðloðandi innrömmun frá því um fermingaraldur og hefur gaman af fjölbreyttum verkefnum. mbl.is/Árni Sæberg

Hægt að ramma inn meira en bara myndir

Elvar segir fólk koma í Innrammarann með alls kyns innrömmunarbeiðnir.

„Það er hægt að ramma inn svo miklu fleira en bara hefðbundnar myndir. Við höfum til dæmis rammað inn alls konar persónulega muni, gamla miða, íþróttatreyjur og ýmislegt annað sem fólk vill varðveita. Teikningar eftir börnin geta líka orðið að mjög skemmtilegum verkum á veggnum með réttri umgjörð. Stundum þarf bara að útbúa dýpri ramma eða finna aðra lausn sem hentar gripnum.“

Á flestum heimilum hanga myndir og listaverk sem gefa smá innsýn í líf og smekk þeirra sem þar búa. Elvar segir þau hafa mikil áhrif á heildarútlit heimilisins.

„Myndir og listaverk geta haft mikil áhrif á heildarútlit heimilisins, gert það hlýlegra, líflegra og gefið því meiri karakter. Það getur líka verið mjög fallegt að blanda saman listaverkum og persónulegum ljósmyndum, til dæmis úr ferðalögum eða af fjölskyldunni. Með réttri innrömmun geta jafnvel einfaldar myndir gert heilmikið fyrir rýmið,“ segir Elvar. Hann tekur fram að þetta þurfi alls ekki að vera dýr listaverk. „Gömul fjölskyldumynd, ljósmynd úr ferðalagi eða teikning eftir barnið þitt getur haft alveg jafn mikið gildi og með fallegri innrömmun fær hún að njóta sín.“

Þurfa rammar á sama vegg að vera í svipuðum stíl eða getur verið fallegt að blanda saman ólíkum römmum, ljósmyndum og listaverkum?

„Það getur verið mjög fallegt að blanda saman ólíkum römmum og myndum. Mér finnst myndaveggir oft skemmtilegastir þegar þeir hafa einhvern persónuleika og það þarf alls ekki allt að vera eins. Það er samt gott að hafa einhvern sameiginlegan þráð, hvort sem það eru litirnir, uppröðunin eða bilið á milli myndanna. Ef fólk vill rólegra yfirbragð getur líka verið fallegt að nota sömu rammategund í mismunandi stærðum.“

Er hægt að hafa of margar myndir á veggjunum?

„Ég held að þetta snúist miklu frekar um uppröðunina en fjöldann. Stór myndaveggur með mörgum ólíkum verkum getur verið mjög flottur ef það er ákveðið jafnvægi í honum. Á sama tíma getur ein stór mynd gert heilmikið fyrir rýmið. Gott er að leggja myndirnar á gólfið og prófa mismunandi uppröðun áður en farið er að bora í veggina.“

Minningar sem eiga skilið góða umgjörð

Hvað þarf að hafa í huga varðandi gler og efnisval til að vernda verkið?

„Það er mikilvægt að hugsa ekki bara um útlitið heldur líka hvernig myndin varðveitist. Við notum eingöngu sýrufrí karton og bjóðum meðal annars upp á Artglass, sem dregur verulega úr endurkasti og veitir einnig vörn gegn útfjólubláum geislum. Artglass hefur orðið töluvert vinsælla undanfarin ár og í dag velja um 90% viðskiptavina okkar það fram yfir hefðbundið gler. Munurinn er svo mikill að þegar fólk hefur einu sinni prófað það vill það yfirleitt ekki fara aftur í venjulegt gler. Svo er almennt best að forðast að hengja viðkvæm verk í beina sól eða þar sem er mikill raki og hitasveiflur.“

Hefurðu rammað inn sérstaklega verðmætt verk eða verk sem hefur eftirminnilega sögu? Fylgir því meiri ábyrgð að vinna með slíka gripi?

„Já, ég hef unnið með mjög verðmæt listaverk í gegnum tíðina og auðvitað fylgir því mikil ábyrgð. Ég hef samt alltaf litið þannig á að það eigi að fara jafn varlega með öll verk, óháð verðmæti þeirra. Við fáum til dæmis stundum gamlar barnateikningar sem eru kannski 50 ára gamlar og hafa verið geymdar í áratugi. Fyrir móðurina sem kemur með slíka teikningu getur hún verið mun verðmætari en eitthvert dýrt listaverk. Þess vegna finnst mér mikilvægt að meðhöndla alla þessa hluti af sömu vandvirkni og virðingu.“

Ef þú ættir að gefa lesendum sem eru að velja ramma eða raða myndum á vegg eitt ráð, hvert væri það?

„Ég myndi ráðleggja fólki að hugsa ekki of mikið um hvað er í tísku hverju sinni heldur velja það sem því sjálfu finnst fallegt og passar við heimilið. Og ef fólk á mynd sem því þykir vænt um en hefur legið ofan í skúffu í mörg ár, þá er kannski kominn tími til að gera eitthvað úr henni. Það er ótrúlegt hvað falleg innrömmun getur gert fyrir myndina.“

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab