Unglingsstúlka hvarf í maí 2025 – Fannst eftir 500 daga

Pressan

Laugardaginn 21. nóvember 2026 16:00

Kylie Arellarion fannst eftir 500 daga.

Þann 29. maí 2025 hvarf hin 15 ára Kylie Arellano sporlaust í Garden City í Utah í Bandaríkjunum. Umfangsmikil leit hófst strax og alríkislögreglan FBI fylgdi eftir vísbendingum bæði innanlands og utan. En það var eins og jörðin hefði gleypt hana.

En sem betur fer tók málið nýja og jákvæða stefnu nýlega þegar Kylie fannst á lífi eftir að hafa verið saknað í 500 daga. Hún fannst í húsi í Oregon.

People segir að hún hafi komist í kynni við 39 ára karlmann á samfélagsmiðlinum Snapchat áður en hún hvarf. Talið er að þau hafi mælt sér mót og hann síðan numið hana á brott.

Hún segir að sér hafi verið haldið gegn vilja sínum á heimili mannsins sem er nú í haldi lögreglunnar.

Það sem var afgerandi fyrir að hún fannst var að hún komst í samband við barnunga stúlku á Internetinu og sagði henni frá aðstæðum sínum. Foreldrar stúlkunnar komu þá á myndsamtali á milli dóttur sinnar og Kylie og fylgdust alríkislögreglumenn með því.

Í samtalinu sagði Kylie að maðurinn hefði flutt hana frá Utah til Oregon. Skömmu síðar fann lögreglan hana heima hjá Adam Hunter Harmel. Hann var handtekinn um 50 kílómetra frá heimili sínu.

Hann hefur verið ákærður fyrir að hafa farið með Kylie frá Utah til Oregon með það í huga að beita hana kynferðislegu ofbeldi.

Kylie hefur sagt að hann hafi haldið henni fanginni og beitt hana kynferðisofbeldi og annars konar ofbeldi.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab