Skelfilegt slys í fallhlífarstökki – Tóku hvor aðra með í dauðann

Fallhlífarstökk tveggja bandarískra kvenna endaði skelfilega þegar þær rákust saman í loftinu og hröpuðu báðar stjórnlaust til jarðar í kjölfarið og biðu bana þegar þær skullu á jörðinni.

Konurnar, sem voru 29 og 56 ára, stukku út úr flugvél yfir akri í Riverside County í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Í fyrstu gekk allt samkvæmt áætlun. Þær stukku út og opnuðu síðan fallhlífar sínar.

Þegar þær voru í 46 metra hæð og voru að undirbúa sig undir lendingu, átti harmleikurinn sér stað. Þær rákust saman með þeim afleiðingum að fallhlífar þeirra flæktust saman.

Þetta hafði þær afleiðingar að þær þutu til jarðar í nánast frjálsu falli og hlutu svo alvarlega áverka þegar þær skullu niður að ekki reyndist unnt að bjarga lífi þeirra. Bild skýrir frá þessu.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab