Pétur varar við dýrkeyptum mistökum í Reykjavík: Eignir borgarinnar eru ekki eignir þeirra sem fara með völdin
Pétur H. Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, varar við því að borgin selji frá sér mikilvæga innviði og segir að ekki eigi að líta á einkavæðingu sem sjálfsagða lausn. Hann gagnrýnir nýjan meirihluta í Reykjavík fyrir að opna á sölu Ljósleiðarans og telur að læra megi af reynslu nágrannaþjóða.
Þetta kemur fram í ítarlegri færslu sem Pétur birti á Facebook í gærkvöldi.
„Á sama tíma og ýmsar þjóðir eru farnar að endurmeta einkavæðingu mikilvægra innviða er nýr hægrimeirihluti í Reykjavík að opna fyrir sölu á Ljósleiðaranum,“ skrifar hann.
Pétur segir að lengi hafi verið ríkjandi sú hugmynd á hægri væng stjórnmálanna að draga eigi úr opinberum rekstri, selja eignir og færa verkefni til einkaaðila. Hann viðurkennir að víða hafi verið góð rök fyrir því að opna markaði og auka samkeppni en segir að slíkt eigi ekki sjálfkrafa við í öllum tilvikum.
„Spurningin á ekki að vera hvort hið opinbera eigi yfirhöfuð að reka fyrirtæki. Hún á að vera hvort eignarhaldið og reksturinn þjóni almannahagsmunum.“
Bendir á reynslu nágrannaþjóða
Pétur nefnir meðal annars Bretland, þar sem rekstur farþegalesta er að færast aftur í opinberar hendur, og Noreg, þar sem fjöldi sveitarfélaga hafi tekið sorphirðu aftur yfir eftir erfiðleika í einkarekstri.
Hann vekur einnig athygli á Stokkhólmi, þar sem ljósleiðarafyrirtækið Stokab hefur verið í eigu borgarinnar frá stofnun þess árið 1994. Að sögn Péturs hafi OECD bent á að fyrirkomulagið hafi stuðlað að öflugri samkeppni og útbreiðslu háhraðatenginga.
Pétur leggur jafnframt áherslu á að öryggissjónarmið skipti sífellt meira máli þegar ákvarðanir séu teknar um eignarhald fjarskiptainnviða. Hann vísar meðal annars til stríðsins í Úkraínu og mikilvægis fjarskiptakerfa þar.
„Það hefur tekið áratugi að byggja þá upp. Það getur tekið einn fund að ákveða að selja þá frá okkur.“
Óðinn fagnar en gagnrýnir Samfylkinguna
Færsla Péturs hefur vakið nokkur viðbrögð. Óðinn Jónsson, fyrrverandi fréttastjóri RÚV, fagnar málflutningi hans en notar jafnframt tækifærið til að gagnrýna Samfylkinguna fyrir fyrri ákvarðanir í borgarmálum.
„Fagna þessu innleggi. Við eigum að verja eignarhald borgaranna á nauðsynlegum innviðum,“ skrifar Óðinn.
Hann segir Samfylkinguna sjálfa hafa gengið of langt í útvistun verkefna.
„Samfylkingin hefur sjálf í anda frjálshyggju gengið of langt í að veikja almannaþjónustuna með útvistun mikilvægra verkefna.“
Óðinn telur að með þessu hafi valdið í borginni færst fjær íbúunum og grafið hafi verið undan samfélagsvitund.
Fleiri taka undir með Pétri. Þórður Snær Júlíusson skrifar „Satt og rétt“ og Guðmundur Ari Sigurjónsson segir „Vel mælt og hárrétt“.
Vill víðtækari sátt um sölu
Pétur bendir á að samkvæmt Gallup-könnun sem Samfylkingin lét gera hafi 57 prósent svarenda verið andvíg því að Ljósleiðarinn færi úr eigu borgarinnar. Hlutfallið hafi verið 73 prósent meðal þeirra sem tóku afstöðu.
Samfylkingin hefur lagt til að sala á meirihluta í mikilvægum innviðafyrirtækjum borgarinnar þurfi samþykki tveggja þriðju hluta borgarstjórnar.
Pétur segir að slíkar ákvarðanir geti haft áhrif á borgarbúa í áratugi og því sé eðlilegt að gera kröfu um víðtæka pólitíska sátt.
„Einkavæðing á ekki að vera trúarbrögð. Og opinbert eignarhald ekki heldur.“
Hann lýkur færslunni á að minna á að meirihlutar í borgarstjórn komi og fari en eignir borgarinnar séu sameiginleg eign borgarbúa.
„Erum við alveg viss um að almannahagsmunum sé best borgið með því að selja?“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗