Haukar aftur á sigurbraut rétt fyrir hlé

Rakel Oddný Guðmundsdóttir sækir að marki HK.

Rakel Oddný Guðmundsdóttir sækir að marki HK. mbl.is/Anton Brink

Haukar unnu útisigur á HK, 30:24, í tíundu umferð úrvalsdeildar kvenna í handbolta í Kórnum í Kópavogi í dag. 

Haukakonur eru í toppsæti deildarinnar með 19 stig, níu sigra og eitt tap, en HK er í áttunda með fjögur. Þetta var síðasta umferðin fyrir EM. 

Haukar voru sjö mörkum yfir í hálfleik, 16:9, og eftirleikurinn var síðan auðveldur. 

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði tíu mörk fyrir Hauka og Rakel Oddný Guðmundsdóttir níu. Tinna Ósk Gunnarsdóttir var þá markahæst hjá HK með sex mörk. 

Mörk HK: Tinna Ósk Gunnarsdóttir 6, Hekla Sóley Halldórsdóttir 5, Inga Fanney Hauksdóttir 4, Jóhanna Lind Jónasdóttir 3, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 2, Sóley Ívarsdóttir 2, Auður Guðmundsdóttir 1, Hekla Fönn Vilhelmsdóttir 1.

Varin skot: Danijela Sara B. Björnsdóttir 6 (21%), Elísabet Millý Elíasardóttir 1 (11%).

Mörk Hauka: Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 10, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 9, Aníta Eik Jónsdóttir 5, Berta Rut Harðardóttir 4, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 1, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 1.

Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 11 (34%), Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 3 (50%)).

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab