Slær aðsóknarmet á Íslandi: „Þetta er sérstakt“
Ljóst er að heimildarmyndin You Can See Everything sem frumsýnd var á Íslandi á fimmtudaginn verður langaðsóknarmesta heimildarmynd í sögu íslenskra kvikmyndahúsa.
Þetta segir Konstantín Mikaelsson, framkvæmdastjóri Smárabíós, en bíóið sér um dreifingu kvikmyndarinnar á íslenskri grundu.
Óhætt er að segja að You Can See Everything sé einhver óvæntasta mynd ársins en framleiðslu hennar var haldið leyndri þar til í september þegar hún var fyrst sýnd á kvikmyndahátíð. Í kjölfarið hefur hún slegið í gegn vestanhafs og hlotið einróma lof gagnrýnenda sem spá því margir að hún verði fyrsta heimildarmyndin til að vera tilnefnd sem besta kvikmyndin á Óskarsverðlaunahátíðinni.
Leikstjórar myndarinnar, sem fjallar um svikahrappinn Elizabeth Holmes, eru Lance Oppenheim og grínistinn Nathan Fielder en í henni fylgjast þeir með lífi Holmes síðasta mánuðinn áður en hún hefur tíu ára fangelsisafplánun.
Rúmlega 3.000 áhorfendur á Íslandi
„Það eru rétt rúmlega 3.000 manns búnir að sjá hana, sem er náttúrulega langstærsta heimildarmynd í sögu Íslands. Þetta er rosalega mikill gangur og það hefur verið uppselt á kvöldsýningarnar hjá okkur í Smárabíói. Þannig að við gátum bara ekki tekið meira að okkur. Það er mikil spenna og fólk virðist vera rosalega ánægt með hana,“ segir Konstantín spurður hvernig aðsóknin á myndina hafi verið fyrstu tvo dagana í íslenskum kvikmyndahúsum.
Hann segir þá aðspurður að það sé mjög óvenjulegt að heimildarmynd slái svona rækilega í gegn.
„Þetta er sérstakt. Við höfum náttúrulega verið með íslenskar heimildarmyndir um Jón Pál Sigmarsson, Bubba Morthens og svoleiðis sem hafa verið mjög vinsælar, en það er samt ekkert í líkingu við hvernig þessi fer af stað.“
Óvenjulegur aðdragandi
Aðdragandinn að þessum sýningum hefur óneitanlega verið sérstakur; það vissi í rauninni enginn af tilvist þessarar myndar fyrr en fyrir tveimur mánuðum. Er ekki óvænt ánægja að fá stórmynd sem þessa í sýningu svo gott sem upp úr þurru?
„Heldur betur. Þetta fór mjög brösuglega af stað, af því að það gerist þannig að Sony, sem við erum með umboðið fyrir, kaupir myndina og kaupir réttinn í nokkrum löndum. Ég held að það hafi verið einhver 20 lönd, þar á meðal öll Skandinavía, eins og þeir kalla það,“ segir Konstantín.
„Ísland er aldrei talið með Skandinavíu í þessum dílum þannig að þeir vissu ekki hvort þeir ættu réttinn yfir Íslandi. Það tók okkur nokkra daga í viðbót að fá það staðfest í gegnum lögfræðingana hjá Sony í Los Angeles. Það var því enn meiri spenna hjá okkur að vita hvort við værum að fara að dreifa þessari mynd og sýna hana.“
Þá segir hann myndina og velgengni hennar líka góða fyrir kvikmyndabransann í heild sinni.
„Að svona mynd geti slegið svona rækilega í gegn og það algjörlega upp úr þurru. Þetta er ekki einhver Marvel-mynd eða ofurhetjumynd eða stór spennumynd sem allir eru að bíða eftir. Þetta er eitthvað algjörlega óvænt og það er alveg yndislegt við þennan bransa hvað hlutirnir geta komið skemmtilega á óvart.“
Aldrei jafn margar fyrirspurnir
Óhætt er að segja að mikil eftirvænting hafi verið fyrir myndinni á Íslandi en hún fór í almennar sýningar í Bandaríkjunum í síðasta mánuði.
„Ég bara man ekki eftir að hafa fengið svona mikið af fyrirspurnum um hvort mynd væri að koma til landsins. Þetta gerist eiginlega eftir fyrstu sýningarhelgina í Bandaríkjunum. Við fengum tugi fyrirspurna um þetta. Allir voru að spyrja og svo fara allir á netið og spyrja aðra,“ segir Konstantín.
„Þetta tók smá tíma en sem betur fer er hún loksins komin. Við unnum hratt og fengum þýðanda sem gat þýtt hana eins fljótt og hægt var. Þetta er náttúrulega þriggja tíma mynd og mikið talað, þannig að það þarf að vanda til verks. Við vorum því rosalega ánægð að geta fengið hana og þannig séð komið henni í bíó með stuttum fyrirvara.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
