Marengsjólatré með berjum og Nóa Smá Kroppi

Jólatré þurfa ekki öll að standa á gólfinu. Þetta marengsjólatré með berjum og Nóa Smá Kroppi sómir sér á kökuborðinu. Ljósmynd/Aðsend

Í rúma þrjá áratugi hefur Nói Síríus gefið út kökubækling fyrir jólin. Útgáfan hófst árið 1992 og hefur síðan fylgt jólaundirbúningnum með uppskriftum að kökum, smákökum og eftirréttum. Bæklingarnir gefa þannig líka innsýn í það hvernig baksturinn hefur þróast og hvaða hráefni og samsetningar hafa freistað okkar í gegnum árin.

Árið 2024 var gert hlé á útgáfunni og uppskriftavefurinn Ljúfa líf settur í loftið. Ári síðar sneri bæklingurinn aftur, þá eingöngu á rafrænu formi.

Uppskriftir sem heilla

Bæklingur ársins ber heitið Bökum saman. Helga María Ragnarsdóttir á uppskriftirnar og ljósmyndirnar og hafði hún systur sína, Júlíu Sif Liljudóttur, sér til aðstoðar við uppskriftagerðina.

Jólatré þurfa ekki öll að standa á gólfinu. Þetta marengsjólatré með berjum og Nóa Smá Kroppi sómir sér á kökuborðinu og er skemmtilegt verkefni fyrir þá sem vilja taka forskot á jólabaksturinn um helgina.

Marengsjólatré með berjum og Nóa Smá Kroppi

Þessi kaka er skemmtileg fyrir þá sem vilja taka forskot á jólabaksturinn um helgina. Ljósmynd/Aðsend

Fyrir 12–14 manns.

Marengs

  • 6 eggjahvítur
  • 300 g sykur
  • 100 g möndluflögur

Rjómafylling og skraut

  • 5 dl rjómi
  • Fersk ber eftir smekk, t.d. jarðarber og bláber
  • 1 poki Nóa Smá Kropp

Aðferð

  1. Stillið ofninn á 120 °C með blæstri.
  2. Þeytið eggjahvíturnar að mjúkum toppum. Látið sykurinn út í smátt og smátt og þeytið á miklum hraða þar til blandan er stíf og gljáandi.
  3. Vefjið möndluflögunum varlega saman við með sleikju.
  4. Klæðið tvær bökunarplötur með bökunarpappír. Teiknið fjóra hringi á pappírinn, tvo á hvora plötu, um 26, 22, 18 og 14 cm í þvermál.
  5. Dreifið marengsinum innan hringjanna. Takið svolítið frá og mótið lítinn topp fyrir efstu hæðina.
  6. Bakið plöturnar samtímis í um 75 mínútur. Slökkvið gjarnan á ofninum og látið botnana kólna þar inni.
  7. Þeytið rjómann. Skerið stærri ber í bita og blandið berjum og Nóa Smá Kroppi varlega saman við. Geymið hluta til skreytingar.
  8. Leggið stærsta botninn á kökudisk og smyrjið rjómafyllingu yfir. Staflið hinum botnunum ofan á í stærðarröð með fyllingu á milli.
  9. Látið marengstoppinn kóróna tréð og skreytið með berjum og Nóa Kroppi.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab