Árásin á 1984: Skemmdu síður sem studdu Palestínu
Mörður Áslaugarson segir markmið tölvuþrjótanna sennilega hafa verið að ráðast gegn síðum sem styðja Palestínu. Samsett mynd
Markmið tölvuþrjóta sem stóðu fyrir umfangsmikilli tölvuárás gegn íslenska vefhýsingarfyrirtækinu 1984 ehf. í gær virðist hafa verið að eyðileggja vefsíður til stuðnings Palestínu.
Þetta segir Mörður Áslaugarson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, en tölvuþrjótunum tókst að eyðileggja sjö slíkar vefsíður áður en framganga þeirra var stöðvuð. Sennilega er það eina tjónið sem varð af árásinni.
Fyrirtækið lokaði tímabundið fyrir alla þjónustu sína í gær eftir að ljóst var að tölvuárás væri að eiga sér stað.
„Við höfum stöðvað alla virkni þessara árásaraðila, erum í raun löngu búin að því. Við gerðum það í gær. En þá þarf að fara yfir allt sem þeir mögulega hafa gert, fjarlægja öll þeirra verksummerki og hreinsa raunverulega upp eftir þetta. Það er fasinn sem við erum í núna, upphreinsifasinn,“ segir Mörður en Syndis sinnir þessari hreinsunarvinnu.
„Samhliða þessu erum við að búa okkar búnað undir það að opna aftur fyrir þjónustur okkar, eina af annarri.“
Opna póstinn vonandi í dag
Spurður hvort það liggi fyrir hvenær hægt verði að opna aftur fyrir þjónustu fyrirtækisins segir Mörður:
„Ekki enn. Við munum geta svarað því í dag. Við viljum ekki lofa upp í ermina á okkur. Okkur finnst það eiginlega bara ekki boðlegt. Þá verðum við bara að þola það að fólk sé óánægt með að við getum ekki gefið neina áætlun. Við viljum hins vegar vera viss um að það sem við segjum muni standast í aðalatriðum.“
En er hægt að gefa einhvern tímaramma? Eru þetta dagaspursmál?
„Það er svolítið mismunandi eftir því um hvaða þjónustu er að ræða. Póstþjónusta og DNS-þjónusta eiga að vera komnar upp núna um helgina. Helst í dag eða aðfaranótt morgundagsins. Við vinnum allan sólarhringinn,“ segir Mörður.
„Síðan ætlum við að reyna að opna fyrir sýndarþjóna viðskiptavina. Við veitum þjónustu sem heitir VPS, Virtual Private Server á ensku, og við munum vonandi opna fyrir þá þjónustu síðari hluta dags á morgun eða á mánudag. Þetta fer allt eftir því hvenær við erum orðin örugg með að öryggið sé alveg tryggt. Þetta snýst fyrst og fremst um það.“
„Þetta er svolítið eins og að hafa fengið óboðinn gest inn á heimili sitt. Hann var ekki alls kostar snyrtilegur og skildi eftir einhverja drullu hér og þar. Við viljum að það sé engin drulla neins staðar þegar við hleypum öðrum inn til þess að nota húsakynnin,“ segir Mörður jafnframt.
Náðu að trufla þrjótana fljótt
Sem fyrr segir virðist upprunalegt markmið tölvuþrjótanna hafa verið að eyðileggja vefsíður sem sýndu palestínsku þjóðinni stuðning en eftir að hafa skemmt sjö slíkar vefsíður reyndu þeir að dreifa sér víðar um kerfi 1984.
Spurður hvort eitthvað liggi fyrir um frekara tjón en eyðileggingu vefsíðnanna segir Mörður ólíklegt að það hafi verið mikið.
„Við náðum þeim eiginlega alveg strax. Við sáum þá mjög fljótt og trufluðum þá alveg frá upphafi, þannig að þeir fengu ekkert næði til að láta meira að sér kveða. Svo lokuðum við að endingu til þess að fá frið, svo við þyrftum ekki að vera að berjast við þá,“ segir hann.
„Þannig að við erum mjög lítið svartsýn, eða öllu heldur bara mjög bjartsýn á að skaðinn að öðru leyti sé fyrst og fremst óþægindin af þjónustufallinu.“
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗